October 2025

Leikskólinn Iðavöllur

Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2025 Skólar og aðrar menntastofnanir  Leikskólinn Iðavöllur á Akureyri fyrir ötult, fjölbreytt og faglegt  þróunarstarf, frumkvæði og metnað   Í leikskólanum Iðavelli eru rúmlega 104 börn í fimm deildum.  Skólinn er kunnur fyrir stöðuga viðleitni starfsfólks til að efla starfið, sem byggir á hugmyndafræði Reggio Emilia og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Reggio Emilia […]

Leikskólinn Iðavöllur Read More »

Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar

Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2025 Skólar og aðrar menntastofnanir  Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar fyrir metnaðarfullt og árangursríkt tónlistarstarf sem unnið er af elju og fagmennsku í þágu barna  Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar var stofnuð 1954 og var ein tveggja fyrstu skólahljómsveita í Reykjavík. Núverandi skólahljómsveitarstjóri er Ingi Garðar Erlendsson og hefur hann stjórnað hljómsveitinni frá

Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar Read More »

Víkurskóli í Reykjavík

Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2025 Skólar og aðrar menntastofnanir  Víkurskóli í Reykjavík fyrir öflugt og metnaðarfullt þróunarstarf með áherslu á nýsköpun, hönnunarhugsun, samþættingu og leiðsagnarnám    Víkurskóli er nýr skóli á unglingastigi í Grafarvogi í Reykjavík en þar hófst kennsla 2020. Nemendur eru um 240 í 8.-10. bekk. Frá upphafi var ákveðið að skólinn yrði

Víkurskóli í Reykjavík Read More »

Gunnar Ásgeir Sigurjónsson

Framúrskarandi kennari Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2025  Gunnar Ásgeir Sigurjónsson, framhaldsskólakennari á pípulagningabraut Tækniskólans, fyrir einstaka alúð við nemendur og fagmennsku í starfi  Gunnar Ásgeir lauk iðnmeistarapróf frá Tækniskólanum 2009, kennslufræði fyrir iðnmeistara frá Háskóla Íslands 2011 og prófi í byggingariðnfræði frá Háskólanum í Reykjavík 2019. Hann kennir m.a. áfanga um hita-, neysluvatns- og fráveitukerfi,

Gunnar Ásgeir Sigurjónsson Read More »

Hjördís Óladóttir

Framúrskarandi kennari Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2025  Hjördís Óladóttir, grunnskólakennari við Hrafnagilsskóla, fyrir skapandi og fjölbreytta kennsluhætti og námsumhverfi í byrjendakennslu  Hjördís Óladóttir lauk kennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands 2002 og námi í starfstengdri leiðsögn og kennsluráðgjöf frá Háskóla Íslands 2022. Hún hefur kennt við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri, en kennir nú við Hrafnagilsskóla

Hjördís Óladóttir Read More »

Ingibjörg Jónasdóttir

Framúrskarandi kennari Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2025  Ingibjörg Jónasdóttir, leikskólakennari við leikskólann Rauðhól í Reykjavík, fyrir farsælt brautryðjendastarf í leikskólakennslu  Ingibjörg Jónasdóttir lauk leikskólakennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands 2002 og viðbótardiplómu í uppeldis- og menntunarfræði á meistarastigi með áherslu á fjölmenningu frá Háskóla Íslands 2010.  Ingibjörg hefur starfað hjá leikskólum Reykjavíkurborgar frá 1991 og sem leikskólakennari

Ingibjörg Jónasdóttir Read More »

Laufey Einarsdóttir

Framúrskarandi kennari Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2025  Laufey Einarsdóttir, grunnskólakennari í Sæmundarskóla, fyrir faglega, hugmynda- og árangursríka stærðfræðikennslu  Laufey lauk kennaraprófi 2006 frá Kennaraháskóla Íslands. Áður hafði hún lokið B.A. prófi í listasögu frá Kaupmannahafnarháskóla. Laufey hefur kennt við Sæmundarskóla í Reykjavík síðastliðinn áratug. Laufeyju þykir hafa tekist einstaklega vel að glæða áhuga nemenda á

Laufey Einarsdóttir Read More »

Örvar Rafn Hlíðdal

Framúrskarandi kennari Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2025  Örvar Rafn Hlíðdal, íþróttakennari við Flóaskóla, fyrir framúrskarandi íþróttakennslu og árangur í starfi  Örvar Rafn Hlíðdal lauk prófi í íþróttafræðum frá Háskóla Íslands 2011 og hefur verið íþróttakennari við Flóaskóla frá sama ári þar sem hann kennir öllum árgöngum skólans, íþróttir og sund. Örvar hefur einnig fengist við

Örvar Rafn Hlíðdal Read More »

Gullin í grenndinni

Þróunarverkefni Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2025  Gullin í grenndinni – samvinna leik- og grunnskóla um nám úti í náttúrunni  Gullin í grenndinni er útináms- og samstarfsverkefni tveggja skóla á Selfossi, leikskólans Álfheima og grunnskólans Vallaskóla. Meginmarkmið verkefnisins er að nemendur kynnist náttúrunni og læri og upplifi hana á fróðlegan og skemmtilegan hátt, auk þess að skapa

Gullin í grenndinni Read More »

Íslenskubrú Breiðholts

Þróunarverkefni Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2025  Íslenskubrú Breiðholts – samstarfsverkefni um að efla íslenskukennslu barna með annað móðurmál en íslensku  Íslenskubrú Breiðholts er verkefni sem ætlað er að leiða saman grunnskólana fimm í hverfinu til að efla og samhæfa kennslu í íslensku sem öðru tungumáli, vinna að fjölmenningarlegum kennsluháttum í samvinnu við starfsfólk og efla

Íslenskubrú Breiðholts Read More »

Scroll to Top