November 2025

Aðalfundur samtakanna 18. nóvember – afmælisfundur

Aðalfundur samtakanna verður haldinn í safnaðarheimili Laugarneskirkju við Kirkjuteig í Reykjavík, þriðjudaginn 18. nóvember, kl. 17.00-19.00/20.00. Þetta er afmælisfundur – samtökin voru stofnuð á Selfossi 18. nóvember 2005. Eftir venjuleg aðalfundarstörf verður efnt til pallborðsumræðna um stöðu skólamála um þessar mundir. Léttar veitingar! Sjá nánar hér: https://padlet.com/ingvarsigurgeirsson/saus_adalfundur_2025

Aðalfundur samtakanna 18. nóvember – afmælisfundur Read More »

Ráðstefna um niðurstöður rannsóknarinnar COVID-19 og framhaldsskólann

Föstudaginn 28. nóvember var haldin ráðstefna þar sem kynntar voru niðurstöður rannsóknarinnar COVID-19 og framhaldsskólinn. Gagnasöfnun hófst strax vorið 2020 og stóð í meira en þrjú ár. Niðurstöðurnar veita mikilvægar upplýsingar um starfsaðstæður framhaldsskólakennara, bæði á farsóttartímum og í kjölfar þeirra, en varpa einnig ljósi á hugmyndir framhaldsskólafólks um nám og kennslu, sem og framtíð

Ráðstefna um niðurstöður rannsóknarinnar COVID-19 og framhaldsskólann Read More »

Íslensku menntaverðlaunin 2025 veitt á Bessastöðum

Íslensku menntaverðlaunin 2025 voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 4. nóvember. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum; fyrir framúrskarandi skóla- eða menntaumbótastarf, kennslu, þróunarverkefni, iðn- og verkmenntun, auk sérstakra hvatningarverðlauna. Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Að auki er veitt hvatning til

Íslensku menntaverðlaunin 2025 veitt á Bessastöðum Read More »

Hvatningarverðlaun 2025

Hvatningarverðlaunin 2025 fær Háaleitisskóli í Reykjanesbæ fyrir að hafa tekist að skapa einstakan fjölmenningarlegan skóla sem getur orðið öðrum fyrirmynd. Í Háaleitisskóla í Reykjanesbæ eru um 370 nemendur. Sjö af hverjum tíu nemendum í skólanum eru af erlendum uppruna og í skólanum eru töluð um 30 tungumál. Í skólanum hefur tekist að skapa einstaklega jákvæða

Hvatningarverðlaun 2025 Read More »

Scroll to Top