Skólaþræðir, veftímarit Samtaka áhugafólks um skólaþróun, SÁUS (skolathraedir.is) er 10 ára núna í nóvember. Í tilefni af því boðar stjórn Samtakanna til afmælisfagnaðar í safnaðarheimili Laugarneskirkju í Reykjavík fimmtudaginn 19. nóvember 2026 kl. 17-19.
Á þessum tíu árum hafa birst í Skólaþráðum 255 greinar, 31 pistill, 1 bæði grein og pistill og alls hafa 280 höfundar komið að ritun umræddra greina. Tímaritið er vettvangur skólafólks og fræðimanna á sviði menntunar að kynna hugðarefni sína og sjónarmið á þeim vettvangi. Stjórn SÁUS er þakklát fyrir þann mikla fjölda greina/pistla sem hafa birst í tímaritinu og telur þær vera mikilvert framlag til íslenskrar menntunar og skólaumræðu.
Í afmælisboðinu verður kynning á sögu Skólaþráða, pallborð fræðimanna sem hafa verið virkir greina-/pistlahöfundar þar og boðið er upp á veitingar. Frítt er á afmælisfagnaðinn en það þarf að skrá sig á hann, í síðasta lagi mánudaginn 16. nóvember. Innritun fer fram á eftirfarandi vefslóð: https://forms.gle/x2dy55ng1dgktPuQ7