Ákveðið hefur verið að ágústráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun (SÁUS) 2026 verði haldin föstudaginn 14. ágúst. Leitað er að stað til að halda ráðstefnuna en líklegt er að það verði á höfuðborgarsvæðinu. Þema ráðstefnunnar er sömuleiðis ákveðið og verður: Fagmennska og gefandi skólastarf. Með þemanu er lögð áhersla á mikilvægi kennara, valdeflingu þeirra og því að skólastarf sé gefandi, í margvíslegum skilningi fyrir bæði nemendur og kennara. Stjórnin er að undirbúa aðalerindi og síðar mun hún auglýsa eftir aðilum, ekki síst kennurum til að kynna fyrir kollegum sínum verkefni og verkfæri sem þeir telja að sé þeim og/eða nemendum gefandi, til að halda málstofuerindi. Skráningar á ráðstefnuna verða auglýstar síðar.
Ný stjórn SÁUS var skipuð á aðalfundi í nóvember 2025 til næstu tveggja ára. Stjórnin hefur skipt með sér verkum: Hulda Dögg Proppé verður áfram formaður, Anna Huld Einarsdóttir varaformaður, Fjóla Þorvaldsdóttir gjaldkeri, Vigfús Hallgrímsson ritari og meðstjórnendur eru Ármann Halldórsson, Ólöf Magnea Stefánsdóttir og Ragnar Þór Pétursson (sem einnig er einn þriggja umsjónarmanna skólaþróunarspjalls SÁUS á Fb).
Á síðasta aðalfundi gengu nokkrir aðilar úr stjórn og eru þeim þökkuð góð störf fyrir SÁUS. Sérstaklega viljum við þakka Ingvari Sigurgeirssyni sem hætti í stjórn eftir samfellda setu í stjórninni frá stofnun SÁUS árið 2005 eða í 20 ár. Hann verður þó áfram fulltrúi SÁUS í samstarfshópi um Íslensku menntaverðlaunin. Einnig henni Þrúði Hjelm sem gekk úr stjórninni eftir 16 ára samfellda setu þar.
Stjórnin tekur við hugmyndum, tillögum og öðrum ábendingum frá félagsfólki sem öðrum og skal þá senda erindi til stjórnarinnar á netfangið skolathroun@skolathroun.is.
Stjórn Samtaka áhugafólks um skólaþróun 2025-2027.