Árskóli á Sauðárkróki

Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2024 – Skólar og aðrar menntastofnanir

Árskóli á Sauðárkróki fyrir forystu um fjölbreytt og faglegt skólaþróunarstarf sem hefur verið öðrum skólum góð fyrirmynd 

Árskóli er heildstæður grunnskóli þar sem rúmlega 380 nemendur stunda nám. Á undanförnum árum hefur skólinn verið leiðandi á fjölmörgum sviðum.  

Fyrst má nefna að skólinn hefur verið brautryðjandi í þróun innra mats. Frá árinu 1999 hefur starfsfólk skólans byggt sjálfsmat skólans á skoska sjálfsmatskerfinu How Good Is Our School, sem fyrst hét Gæðagreinir, en heitir núna Hversu góður er grunnskólinn okkar? Starfsfólk skólans hefur þýtt efnið og kynnt og aðstoðað við innleiðingu á þessum sjálfsmatsaðferðum í skólum víða um land. Þá má nefna markvissa uppbyggingu við að nýta upplýsingatækni í skólastarfi en þar hefur skólinn verið í fararbroddi. Hið sama gildir um teymiskennslu sem byrjað var innleiða í skólanum 2009 og hefur skilað góðum árangri.  

Skólaárið 2012-13 hóf Árskóli þátttöku í norsku verkefni, Trivselsprogrammet eða Vinaliðaverkefninu. Var það liður í viðleitni skólans til að hvetja nemendur til meiri þátttöku í afþreyingu og almennri hreyfingu í frímínútum og skapa um leið betri skólaanda. Árskóli er móðurskóli verkefnisins og hefur aðstoðað um fimmtíu aðra skóla við að innleiða þetta verkefni.  

Skólastarfið í Árskóla er varðað mörgum hefðum sem setja sterkan svip á skólabraginn. Danshátíð þar sem 10. bekkingar dansa í sólarhring með aðstoð allra nemenda. Leikrit þar sem allir nemendur fara á svið. Alls rúmlega 30 sýningar í félagsheimilinu Bifröst. 10. bekkingar enda með barnaleikriti í fullri lengd. Þá má nefna friðargöngu, þorrablót, íþróttadag og gleðigöngu. Foreldrar og bæjarbúar taka þátt í þessum hefðum.  

Þá hafa Árskóli og Höjelseskole í Danmörku átt farsæla samvinnu í 25 ár þar sem danskir nemendur dvelja á íslenskum heimilum í viku á haustin og Árskólanemendur á dönskum heimilum í viku á vorin. Foreldrar í báðum skólunum eru þar í lykilhlutverkum.  

Um þessar mundir er verið að innleiða í skólanum verkefni sem byggt er á jákvæðri sálfræði og beinist að því að nemendur læri að þekkja og nýta eigin styrkleika og eiga jákvæð og uppbyggileg samskipti. Verkefnið See the good –„Sjáðu styrkleikann“ er finnskt að uppruna.  

Úr umsögnum sem fylgdu tillögum um tilnefningu skólans:  

Nemendamælingar Skólapúlsins hafa alltaf sýnt mjög gott samband nemenda og kennara, en samkvæmt Skólapúlsinum er samband nemenda við kennara með meðaltalið 4,7 á landsvísu en í 10. bekk Árskóla er það 5,9.sem staðfestir jákvæða upplifun langflestra á góðum skólabrag.  

Það er ljóst að Vinaliðaverkefnið hefur verið mikilvæg menntaumbót á Íslandi síðustu 10 ár og haft jákvæð áhrif á leiðtogahæfni, skólabrag, þátttöku barna, vináttu, vellíðan og síðast ekki síst hreyfingu. Líklega eru fá verkefni sem hafa haft jafn jákvæð áhrif á skólastarf og líðan jafn marga nemenda og Vinaliðaverkefnið.  



Yfirlit um tilnefningar 2024


Scroll to Top