Fréttir

Samræða um menntastefnu til ársins 2030

Félag um menntarannsóknir og Samtök áhugafólks um skólaþróun bjóða félagsmönnum og öðrum áhugasömum um menntamál á nestisfund þar sem rætt verður um aðra aðgerðaáætlun vegna Menntastefnu til ársins 2030: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson og Hermína Gunnþórsdóttir: Önnur aðgerðaáætlun í menntamálum rýnd Frummælendur hafa nýverið rýnt í aðgerðaáætlunina og birt greinar þar sem þau greina helstu áherslur […]

Samræða um menntastefnu til ársins 2030 Read More »

Greinar um skólaþróun til birtingar í Skólaþráðum

Í tilefni af 20 ára afmæli sínu efna Samtök áhugafólks um skólaþróun til samkeppni um ritun greina um skólamál til birtingar í vefritinu Skólaþráðum. Leitað er eftir greinum um þróunar- og umbótastarf og umræðugreinum um stefnur og strauma í skólastarfi. Eftirsóknarvert er að fá greinar um árangursríka kennsluhætti og samstarfsverkefni, innlend eða alþjóðleg. Miðað er

Greinar um skólaþróun til birtingar í Skólaþráðum Read More »

Hvað er leikskóli?

Félag leikskólakennara og Samtök áhugafólks um skólaþróun efndu til ráðstefnu á Hilton Reykjavík Nordica, mánudaginn 13. október,  um  hlutverk leikskólans í samfélaginu og hlutverk kennara og annars starfsfólks í leik og námi barna. Dagskrá: 09:00 Ingvar Sigurgeirsson skólaráðgjafi og stjórnarmaður í Samtökum áhugafólks um skólaþróun: Setning Efni sem Ingvar benti á í setningarávarpi sínu 09:15

Hvað er leikskóli? Read More »

Skóli margbreytileikans: Leiðir og verkfæri til vaxtar!

Dagskrá  Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun í Stekkjaskóla á Selfossi 14. ágúst 2025 Ráðstefnustjóri: Heiða Ösp Kristjánsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs Árborgar Helstu dagskrárliðir (með eðlilegum fyrirvara): 9.30-12.10 (með kaffihléi) – dagskrá í aðalsal: Setning ráðstefnunnar: Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar Dr. Fríða Bjarney Jónsdóttir, samhæfingastjóri MEMM hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu, fjallar um MEMM verkefnið (Menntun – Móttaka –

Skóli margbreytileikans: Leiðir og verkfæri til vaxtar! Read More »

Vinna á valsvæðum – samkeppni

Samtök áhugafólks um skólaþróun efna til samkeppni um lýsingar á námi og kennslu sem byggir á valsvæðavinnu. Margir kennarar í leik-, grunn- og framhaldsskólum skipuleggja reglulega verkefni sem nemendur leysa á vinnusvæðum sem upp eru sett – oft kennd við val, valsvæði, stöðvavinnu eða hringekjur. Stundum eru svæðin innan bekkja eða árganga, en einnig þekkist aldursblandað

Vinna á valsvæðum – samkeppni Read More »

Greinar um áhugavert námsumhverfi í Skólaþráðum

Í Skólaþráðum hafa verið að birtast greinar um áhugavert námsumhverfi en í haust efndu Skólaþróunarsamtökin til nokkurs konar samkeppni um lýsingar í máli og myndum á áhugaverðu námsumverfi og bárust á annan tug kynninga. Fimm þeirra voru verðlaunaðar sérstaklega og greinar skrifaðar um námsumhverfin í samráði við verðlaunahafana. Sjá hér:  Námsumhverfi K2 (Tækni- og vísindaleiðinni)

Greinar um áhugavert námsumhverfi í Skólaþráðum Read More »

Endurnýjað samkomulag um Íslensku menntaverðlaunin undirritað

Að lokinni athöfn á Bessastöðum 5. nóvember sl. undirrituðu aðstandendur Íslensku menntaverðlaunanna ótímabundið samkomulag um verðlaunin til framtíðar. Samkomulagið miðar við að verðlaunin verði áfram með sama sniði. Auglýst verður eftir tillögum um tilnefningar að vori, tilnefningar kynntar á alþjóðlega kennaradeginum 5. október og verðlaunin afhent á Bessastöðum í nóvember. Að verðlaununum standa Embætti forseta

Endurnýjað samkomulag um Íslensku menntaverðlaunin undirritað Read More »

Íslensku menntaverðlaunin 2024 veitt á Bessastöðum

Íslensku menntaverðlaunin 2024 voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 5. nóvember. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum; fyrir framúrskarandi skóla- eða menntaumbótastarf, kennslu, þróunarverkefni, iðn- og verkmenntun, auk sérstakra hvatningarverðlauna. Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Að auki er veitt hvatning til

Íslensku menntaverðlaunin 2024 veitt á Bessastöðum Read More »

Íslensku menntaverðlaunin 2024: Framúrskarandi framlag til iðn- og verkmenntunar

Íslensku menntaverðlaunin 2024 verða kynnt í þætti á RÚV miðvikudagskvöldið 6. nóvember. Verðlaunin eru í fimm flokkum og er einn þeirra fyrir framlag til iðn- og verkmenntunar. Þau eru veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla- eða menntastofnun fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar. Þetta eru tilnefningarnar í ár: Rafmennt fyrir þróun sveigjanlegs og einstaklingsmiðaðs

Íslensku menntaverðlaunin 2024: Framúrskarandi framlag til iðn- og verkmenntunar Read More »

Þróunarverkefnin sem tilnefnd eru til Íslensku menntaverðlaunanna 2024

Þrjú verkefni eru tilnefnd í Íslensku menntaverðlaunanna í ár í flokki framúrskarandi þróunarverkefna. Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni eru veitt verkefnum sem þykja standast ítrustu gæðakröfur um markmið, leiðir, inntak, mat og kynningu, hafa samfélagslega skírskotun og nýtast til að efla menntun í landinu. Til greina koma verkefni sem tengjast skóla- eða frístundastarfi, listnámi eða öðru

Þróunarverkefnin sem tilnefnd eru til Íslensku menntaverðlaunanna 2024 Read More »

Scroll to Top