Ágústráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun (SÁUS) 2026 verður haldin í Hörðuvallaskóla í Kópavogi föstudaginn 14. ágúst. Með þema ráðstefnunnar er ætlunin að beina sjónum að verkefnum, áherslum og viðhorfum sem styrkja fagmennsku kennarastarfsins og færa bæði nemendum og starfsfólki skóla gefandi námsaðstæður og virðingarverð samskipti. Á ráðstefnunni verða flutt erindi á sal fyrir hádegi og eftir hádegi verða mál-/vinnustofur þar sem hægt verður að velja úr nokkrum viðfangsefnum á hverjum tíma. Nánari dagskrá er hér neðar.
Athugið að hætt var að taka við skráningum frá og með þriðjudeginum 11. ágúst. Skráningum er lokið.
Lokadagskrá Ágústráðstefnan 2026_ítardagskrá
Kl. Efni
9:00 Setning ráðstefnunnar: Formaður SÁUS
9:10 Erindið Við erum með sérfræðinga í húsi og treystum þeim. Lagt út af rannsókn á álagi í grunnskólum frá dr. Lilju M. Jónsdóttur f.v. lektor og dr. Ingvari Sigurgeirssyni, prófessor emeritus
10:00 Kaffihlé
10:10 Erindið Menntun í félagsmenningarlegu ljósi frá dr. Hafþóri Guðjónssyni, prófessor emeritus
11:00 Erindið Þarftu ekki að æfa þig?” – Kíkt í dagbók heimilisfræðikennara frá Ingileifi Ástvaldsdóttur, aðjúnkt við Háskólann á Akureyri
11:30 Hádegisverður
12:00 Erindi Hörðuvallaskóla: Gefandi skólastarf
12:30 Erindi Grundarskóla: Grundarskóli – opni skólinn
13:10 Mál-/vinnustofur 1 (tölusettar málstofur eru á efri hæð í gangi til hægri inn af miðrými)
- Lego education. Spike Essential og Prime (Skólastofa nr. 19)
- Tónlist með börnum á einhverfurófi í íslenskum leikskólum (Skólastofa nr. 20)
- Hamingjuhópurinn (Skólastofa nr. 21)
- Fordómar og hatursorðræða (Skólastofa nr. 22)
- Samræða til náms (AÐALSALUR)
- Stuðningur við skólasókn: Saman náum við árangri (Skólastofa nr. 23)
14:10 Kaffihlé
14:30 Mál-/vinnustofur 2 (tölusettar málstofur eru á efri hæð í gangi til hægri inn af miðrými)
7. Fjölbreytt nálgun í náttúruvísindakennslu fyrir mið- og unglingastig (Skólastofa nr. 19)
8. Hefur gervigreind í námi með nemendum eitthvað gefandi að færa til fagmennsku skólastarfsins? (Skólastofa nr. 20) Gögn 01, 02, 03. Erindi 1.
9. Stefnumót við stuðningsefni á vef aðalnámskrár (AÐALSALUR)
10. Hvað gerist þegar við hættum að spyrja hvað nemendur geti ekki? -Nýsköpun, STEM og trú á eigin getu í fjölbreyttum nemendahópi (Skólastofa nr. 21)
11. Málstefnuvinna – geta nemendur vísað veginn? (Skólastofa nr. 22)
12. Reynsla og viðhorf grunnskólakennara til vendináms: Tækifæri og áskoranir í kennslu á unglingastigi (Skólastofa nr. 23)
15:30 Ráðstefnulok
Ráðstefnugjald er kr. 7.900.- fyrir félagsfólk í Samtökum áhugafólks um skólaþróun og kr. 10.500.- fyrir utanfélagsfólk. Gjaldið er greitt með því að leggja greiðslu inn á þennan reikning: 0323–26–002277, kt. 451205-0720 og senda tilkynningu um greiðslu á þetta netfang: skolathroun(hja)skolathroun.is.