Framúrskarandi kennari
Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2024
Dóra Guðrún Wild kennari við leikskólann Hlaðhamra í Mosfellsbæ fyrir faglega og metnaðarfulla leikskólakennslu, meðal annars útinám og fyrir að auðga líf barna í Mosfellsbæ með fjölbreyttu lista- og menningarstarfi.
Dóra Guðrún útskrifaðist frá Fósturskóla Íslands 1984 og hefur starfað í leikskólanum Hlaðhömrum frá 1995 og er þar deildarstjóri. Henni er lýst sem einstökum leiðtoga, fyrirmynd og fagmanneskju.
Leikskólinn Hlaðhamrar starfar í anda Reggio Emilia stefnunnar og hefur Dóru Guðrúnu tekist einstaklega vel að nálgast öll námssvið leikskóla í gegnum leik, sköpun og jákvæð samskipti. Umhverfi deildarinnar sem Dóra Guðrún stýrir er lýst sem námshvetjandi og fallega upp settu. Í hverju horni eru kveikjur, sem hvetja börnin áfram í þekkingarleit sinni.
Á undanförnum árum hefur Dóra Guðrún sinnti útinámi með elstu börnum skólans síðasta vorið þeirra í leikskólanum. Þá hafa þau sameinast í svokölluðum Ævintýrahópi sem starfar í 4 vikur frá miðjum maí fram í miðjan júní. Hún hefur stýrt þessum hópi undanfarin ár með frábærum árangri. Börnin fara meðal annars í langar göngur, fjallgöngur og náttúruskoðun og kynna sér menningu og listir.
Dóra Guðrún hefur auðgað líf barna í Mosfellsbæ með fjölbreyttum hætti. Hún leiddi í mörg ár söng barna á Menningarviku leikskóla í Mosfellsbæ þar sem saman komu öll leikskólabörn sveitarfélagsins. Dóra starfar einnig með Leikfélagi Mosfellssveitar og hefur tekið þátt í öllum barnasýningum sem settar hafa verið upp í fjölda ára.
Úr umsögn sem fylgdi tillögu um tilnefningu:
Dóra er mikill leiðtogi í leikskólanum og án hennar væri leikskólinn ekki eins. Hún sinnir starfi sínu af miklum áhuga, fagmennsku og metnaði og er alltaf með velferð, starf, umhverfi og tækifæri barnanna í huga. Hún hugsar út fyrir kassann og aflar sér efniviðar í starf með börnunum ekki bara á sinni deild heldur fyrir allan leikskólann langt út fyrir sinni vinnutíma … Hún fær alla með sér, vinnur með styrkleika starfsfólks á deildinni þannig að það fái að njóta sín sem best og styður það í að vinna með þær hugmyndir sem það fær og koma þeim í framkvæmd … Það eru forréttindi að fá að vinna með kennara sem henni sem gerir mig að betri kennara á hverjum degi.
Dóra Guðrún Wild kennari við leikskólann Hlaðhamra í Mosfellsbæ fyrir faglega og metnaðarfulla leikskólakennslu, meðal annars útinám og fyrir að auðga líf barna í Mosfellsbæ með fjölbreyttu lista- og menningarstarfi.