Dagskrá send út í streymi
Vakin er athygli á því að hægt er að fá aðgang að upptökum af fyrirlestrum af ráðstefnunni um hæfnimiðað nám og leiðsagnarnám sem haldin var í Hraunvallaskóla 14. ágúst. Greitt er fyrir afnotin (sjá hér fyrir neðan). Þeir sem hafa áhuga á að nýta sér þetta sendi tölvupóst á netfangið skolathroun(hja)skolathroun.is.
9.10 Nanna Kr. Christiansen, sérfræðingur um leiðsagnarnám: Verkfærin, hvers vegna að nota þau?
10.00 Kaffihlé
10.20 Valgarð Már Jakobsson skólameistari Framhaldsskólans í Mosfellsbæ: Töfrar samskipta í leiðsagnarnámi
10.55 Erindi: Ívar Rafn Jónsson, lektor við Háskólann á Akureyri: Leiðsagnarnám er ekki tæknilegt viðfangsefni
11.30 Eygló Friðriksdóttir skólastjóri og Laufey Einarsdóttir grunnskólakennari: Svona gerum við: Stefna og starf Sæmundarskóla um hæfnimiðað nám og leiðsagnarnám og dæmi um útfærslu í stærðfræðikennslu á unglingastigi
12.05 Hádegishlé
13.00 Jóhann Örn Sigurjónsson, sérfræðingur hjá nýrri Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS): Hugræn virkjun í hæfnimiðuðu námi
13.35 Erindi: Þuríður Óttarsdóttir, skólastjóri Víkurskóla í Reykjavík: Að byggja upp nýsköpunarskóla
14.15 Kaffihlé
14.30 Leiðsagnarteymið í Njarðvíkurskóla: Okkar lærdómsferli í leiðsagnarnámi
15.15 / 15.30 Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu: Ávarp og ráðstefnuslit.
