Fataiðndeild Tækniskólans

Iðn- og verkmenntun
Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2025 

Fataiðndeild Tækniskólans fyrir einstaklega metnaðarfulla og faglega kennslu 

Í fataiðndeild eru þrjár brautir: fatatækni, kjólasaumur og klæðskurður. Meginmarkmið náms í fatatækni, sem er tveggja ára grunnnám, er að gera nemendum kleift að öðlast undirstöðuþekkingu, leikni og hæfni sem þarf til að starfa sem fatatæknir við saumaskap og ýmsa þjónustu tengda fatnaði og tísku. Námið er undanfari náms í löggiltu iðngreinunum kjólasaumi og klæðskurði. Margir nemendur ljúka einnig kjólasaumi í framhaldi af klæðskurði og öfugt. Á þessu hausti eru rúmlega 80 nemendur í fataiðndeild og komast færri að en vilja.  

Á undanförnum árum hafa kennarar deildarinnar unnið markvisst að umbótum, m.a. með aukinni áherslu á einstaklingsmiðað nám og raunveruleg verkefni þar sem nemendur geta farið á mismunandi hraða í gegnum verkefni áfanganna. Unnið hefur verið markvisst að því að nýta bæði notaðan og nýjan textíl frá fyrirtækjum og stofnunum sem ella hefði að öllum líkindum verið urðaður. Kennslurýmum hefur verið breytt og áhersla á nútímatækni aukin. Þá hafa námsgögn verið þróuð markvisst. Einstakur andi þykir einkenna brautina, þar myndast á hverjum vetri einstakt lærdómssamfélag; samfélag metnaðar, samvinnu, vandvirkni, vinnusemi,  hvatningar og sköpunar.

Kennarar fataiðndeildarinnar fá einstakan vitnisburð nemenda eins og sjá má í þessum umsögnum: 

… gífurlega þolinmóð og góð í að aðstoða og útskýra. Hún er fær um að setja sig inn í mismunandi verkefni nemanda á engri stundu og hjálpa hverjum og einum þar sem hann er staddur. 

… frábær kennari, liðleg og hjálpsöm með mikla þolinmæði fyrir nemendum. Ég hef gaman að því að sitja kennslustundir hjá henni. Allt í allt frábær!“  

… mjög góður kennari. Hún hvetur okkur til þess að vinna vel og vill að nemendur nýti tímann í kennslustundum. Hún er alltaf tibúin til að aðstoða ef einhver lendir í vandræðum. 

 … besti kennari sem ég hef nokkurntíman haft, öll verkefni svo skýr!  

… snillingur í sínu fagi og smitar sínar gáfur í kennslu. Hún er þolinmóð og sanngjörn við nemendur. Hún er yndisleg og frábær!“ 

Þá bera umsagnir núverandi og fyrrverandi nemenda starfinu gott vitni: Það er dásamlegt að vera á fataiðnbraut í Tækniskólanum. Hér eru góður andi og rólegt umhverfi. Frábær vinnuaðstaða með öllum vélum sem þörf er á. Hér eru yndislegir kennarar sem eru alltaf tilbúnar að aðstoða. Við lærum góðan grunn og aðferðir sem munu nýtast okkur í faginu. Frábær þekking sem fleytir manni langt. 


Aftur á yfirlitssíðu

Scroll to Top