Framúrskarandi framlag til iðn- eða verkmenntunar

Íslensku menntaverðlaunin voru endurvakin 2020, en þau höfðu áður verið veitt á árunum 2005 – 2011, en þá aðeins grunnskólum. Verðlaunin voru endurvakin árið 2020 með breyttu sniði og náðu þá til allra skólastiga, sem og frístundastarfs og listkennslu. Samtök iðnaðarins höfðu frumkvæði að því árið 2022 að við var bætt verðlaunum fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar.

Í ár eru eftirtalin verkefni tilnefnd til þessara verðlauna (smellið á heiti verkefnanna til að fá nánari upplýsingar um þau):

  • Menntaskólinn á Ísafirði er tilnefndur fyrir Tímatökuhúsið – verkefni sem sýnir hvernig iðnmenntun getur tengst samfélaginu á uppbyggilegan hátt – en þetta verkefni fólst í hönnun og smíði tímatökuhúss fyrir skíðafélagið sem síðar var flutt upp á skíðasvæðið í Tungudal til notkunar við tímatöku í alpagreinum.
  • Höfundar námsefnisins Matreiðsla eru tilnefndir fyrir heildstætt og vandað námsefni fyrir matreiðslunám á framhaldsskólastigi – en þetta eru rafbækur sem hafa reynst afar vel í kennslu. Höfundar eru matreiðslumeistararnir Hermann Þór Marinósson, Hinrik Carl Ellertsson, Ragnar Wessman, Sigurður Daði Friðriksson og Ægir Friðriksson.
  • Verkmenntaskólinn á Akureyri er tilnefndur fyrir sjálfbæra kennslustofu, nýsköpunarverkefni sem er til fyrirmyndar um markvissa umhverfismennt – en í Verkmenntaskólanum á Akureyri hefur verið sett upp sólarorkuver og aðstaða sköpuð til að fást við margs konar verkefni sem því tengjast.

Scroll to Top