Í tilefni af 20 ára afmæli sínu efna Samtök áhugafólks um skólaþróun til samkeppni um ritun greina um skólamál til birtingar í vefritinu Skólaþráðum. Leitað er eftir greinum um þróunar- og umbótastarf og umræðugreinum um stefnur og strauma í skólastarfi. Eftirsóknarvert er að fá greinar um árangursríka kennsluhætti og samstarfsverkefni, innlend eða alþjóðleg.
Miðað er við greinar sem eru tvö- til fjögur þúsund orð – en ekki eru sett um þetta ákveðin lengdarmörk.
Skipuð verður dómnefnd sem meta mun greinarnar. Veitt verða verðlaun fyrir greinarnar eins og hér greinir:
- verðlaun, kr. 300 þús
- verðlaun, kr. 200 þús
- -5. verðlaun, kr. 100 þús
Greinum (auk myndefnis ef við á) skal skilað með því að senda þær á þetta netfang fyrir 15. desember 2025: skolathroun@skolathroun.is
Dómnefnd mun styðjast við eftirfarandi matsviðmið:
- efnið er forvitnilegt – heitið grípandi – áhugaverð kveikja
- efnið á erindi og inntak fellur vel að þeim efnissviðum sem óskað var eftir
- uppbygging er skýr og gott flæði milli efnisgreina
- röksemdafærsla sannfærandi
- texti er vandaður og frágangur góður
- vísað til heimilda eins og við á
- efnið má gjarnan vera nýstárlegt, fjalla um nýjungar eða birta ný sjónarmið
- skýr niðurstaða sem vekur til umhugsunar um efnið