Grundaskóli á Akranesi

Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2026

Grundaskóli á Akranesi fyrir fjölbreytt og gróskumikið þróunarstarf sem hefur beinst að því að koma sem best til móts við ólíkar þarfir nemenda 

Grundaskóli er heildstæður grunnskóli, nemendur eru um 700 í 1. til 10. bekk. Frá stofnun skólans hefur verið lögð mikil áhersla á vellíðan nemenda og að koma sem best til móts við hæfileika hvers og eins. Einkunnarorð skólans eru samvinna, traust og virðing.

Skólinn er kunnur fyrir sveigjanlega kennsluhætti, fjölbreytt þemaverkefni og öfluga kennslu í list- og verkgreinum. Meðal annars má nefna árlega uppsetningu frumsamdra söngleikja með þátttöku nemenda á unglingastigi, verkleg valnámskeið, kvikmyndagerð, notkun hlaðvarps í kennslu og öflugt listastarf tengt myndlist, leiklist, hönnun og kórastarfi. Grundaskóli hefur auk þessa verið öflugur í innleiðingu jafningjafræðslu og brautryðjandi í framboði á fjölbreyttum tómstundatilboðum fyrir nemendur á skólatíma.

Grundaskóli hefur í samstarfi við Akraneskaupstað verið í forgöngu um innleiðingu farsældarlaganna. Starfsfólk skólans hefur innleitt markvissa starfsferla og samþætt mennta- og velferðarþjónustu. Þá er þátttaka skólans mikil í samfélagslegum verkefnum eins og t.d. Göngum í skólann, heilsueflandi samfélagi og árlegum góðgerðarverkefnum í samstarfi við Rauða kross Íslands.

Starfsfólk skólans hefur unnið að mörgum þróunarverkefnum sem vakið hafa athygli, m.a. um að efla samstarf við foreldra, fjölbreytta kennsluhætti, námsmat, lífsleikni, óhefðbundna stærðfræðikennslu og ábyrgð nemenda á eigin námi. Starfsfólk Grundaskóla hefur auk þess í gegnum árin tekið þátt í fjölmörgum samstarfsverkefnum við aðrar skólastofnanir hér heima og erlendis.

Undanfarin ár hefur verið unnið að þróun kennsluhátta sem kenndir hafa verið við opinn skóla. Lykilþættir eru öflug teymisvinna, sveigjanlegt námsumhverfi, nemendamiðuð kennsla, áhersla á samvinnu og samskipti, verkefnamiðað nám, þverfaglega nálgun, skapandi og gagnrýna hugsun og sjálfstæð vinnubrögð. Þá er unnið að því að þróa stoðþjónustu skólans þannig að starfshættir hennar mótist af þessari sýn. Mikil áhersla er á val innan skólans þar, bæði í formi valnámskeiða, sem og í tækifærum nemenda til að velja og leysa verkefni á áhugasviðum sínum. Þá er áhersla á lýðræðisleg vinnubrögð og að virða skoðanir nemenda og tillögur og að gefa þeim tækifæri til að taka þátt í ákvörðunum um eigið nám.

Samstarf við foreldra hefur frá upphafi verið mjög öflugt. Sem dæmi má nefna að skólinn hefur boðið fram námskeið sem ætluð eru foreldrum og nemendum saman við afar góðar undirtektir.

Grundaskóli hlaut árið 2005 fyrstur skóla Íslensku menntaverðlaunin sem forseti Íslands stofnaði til.


Yfirlit um tilnefningar 2026

Scroll to Top