Framúrskarandi kennari
Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2024
Guðrún Sigurðardóttir kennari við leikskólann Gimli í Reykjanesbæ fyrir einstaka fagmennsku og ástríðu í leikskólastarfi þar sem áhersla er lögð á jákvæð samskipti, styðjandi umhverfi, samkennd og traust.
Guðrún Sigurðardóttir útskrifaðist frá Fósturskóla Íslands árið 1982 og hefur starfað sem leikskólakennari í leikskólanum Gimli í Reykjanesbæ frá árinu 1994. Hún fagnar því 30 ára starfsafmæli í nóvember á þessu ári.
Í dag gegnir Guðrún starfi aðstoðarleikskólastýru ásamt því að kenna á elsta stigi leikskólans. Hún hefur haldið vel utan um mikilvæg verkefni innan leikskólans og má þar nefna áratuga samstarf á milli leik- og grunnskóla sem þykir til fyrirmyndar og eftir er tekið. Einnig hefur Guðrún verið verkefnastýra á Gimli í samstarfsverkefninu Gaman saman. Verkefnið er samfélagslegt og byggir á markvissum samverustundum yngri og eldri borgara þar sem dans, söngur og gleði er í fyrirrúmi. Þetta verkefni hefur vakið mikla athygli og hlotið Hvatningarverðlaun fræðsluráðs Reykjanesbæjar og foreldraverðlaun Heimilis og skóla.
Samstarfsfólk Guðrúnar lýsir viðmóti hennar og vinnubrögðum með þeim orðum að það einkennist af kærleiksríkum aga, gleði, trausti og ástríðu fyrir starfinu í leikskólanum sem endurspeglast í samskiptum hennar við börn, foreldra og samstarfsfólk. Hún þykir einstök fyrirmynd sem með nærveru sinni hvetur, styður og hrífur fólk með sér og smitar þannig jákvæðri orku sem allir í leikskólasamfélaginu njóta góðs af.
Úr umsögnum sem fylgdu tillögum að tilnefningu:
Með gildum sínum nær hún ávallt að draga fram það besta úr aðstæðum í stað þess að einblína á það sem kallar fram fyrirfram ákveðnar niðurstöður. Með leiðsögn og kennslu Guðrúnar ná nemendur árangri, þeir ná að efla sínar sterku hliðar til að blómstra. Með sinni tilfinningagreind hefur hún einstakt lag á því að laða fram það besta bæði hjá nemendum sínum og samstarfsfólki. Hennar góðu gildi í kennslu og í samskiptum eru: Heiðarleiki, samkennd, mildi, úthald, kærleikur, glaðlyndi og traust.
Samstarfsfólki sínu er hún mikil fyrirmynd í faglegu starfi, góðum samskiptum og hvernig hún tekst á við þau fjölbreyttu sem og krefjandi verkefni sem snúa að starfi leikskólakennara.
Guðrún hefur allt að bera til að vera tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna 2024 og þá sem framúrskarandi kennari. Fagmennska hennar er innrömmuð í siðareglur kennara í orðsins fyllstu merkingu.
G