Gunnar Ásgeir Sigurjónsson

Framúrskarandi kennari
Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2025 

Gunnar Ásgeir Sigurjónsson, framhaldsskólakennari á pípulagningabraut Tækniskólans, fyrir einstaka alúð við nemendur og fagmennsku í starfi 

Gunnar Ásgeir lauk iðnmeistarapróf frá Tækniskólanum 2009, kennslufræði fyrir iðnmeistara frá Háskóla Íslands 2011 og prófi í byggingariðnfræði frá Háskólanum í Reykjavík 2019. Hann kennir m.a. áfanga um hita-, neysluvatns- og fráveitukerfi, stýringar og tæknibúnað, endurlagnir og viðgerðir, teikningar og verklýsingar.

Í kennslu sinni leggur Gunnar Ásgeir sérstaka áherslu á að skapa umræður um efnið, virkja nemendur og tengja viðfangsefnin raunverulegum aðstæðum. Jafnframt leggur hann áherslu á að skapa notalegt andrúmsloft í kennslustundum.

Gunnar Ásgeir þykir framúrskarandi kennari sem fær afar góðar umsagnir nemenda og samstarfsfólks. Hann er sagður frábær kennari í alla staði, áhugasamur, jákvæður og lausnamiðaður. Hann sé lifandi dæmi um það hvernig góðir kennarar eru, skapar umhverfi til að spyrja spurninga og leiðir nemendur áfram með þolinmæði, umhyggju og af fagmennsku. 

Gunnar Ásgeir hefur verið þjálfari keppenda Íslands í pípulögnum sem farið hafa á Euroskills – Evrópukeppni ungmenna í iðn- og starfsgreinum, en þetta mót er stærsta mót sinnar tegundar í Evrópu. Hann hefur einnig verið dómari í þessari keppni og var sömuleiðis gestadómari í Worldskills – keppninni í Lyon í Frakklandi í fyrra.  Þá hefur hann tekið þátt í alþjóðasamstarfi um iðngreinina. Gunnar Ásgeir kennir einnig skyndihjálp á vegum Rauða krossins. 

Nemandi með annað móðurmál en íslensku sem hefur dvalið á Íslandi síðan 2021 segir um Gunnar:  

 Gunnar er mjög góður kennari. Hann útskýrir allt mjög vel. Þegar ég byrjaði í pípulögnum fór ég og talaði við hann. Ég geri stundum mistök á íslensku – ég spurði Gunnar hvort það væri í lagi. Hann sagði: ,,ekkert mál ef ég skil allt“. Hann er alltaf til í að hjálpa og styðja … Ef ég er í vandræðum þá er hann alltaf til í að hjálpa mér, útskýra og fara yfir með mér. … Gunnar er almennilegur við alla. Ég elska Gunnar. Ég held að allir elski hann.  

Tillaga að tilnefningu Gunnars Ásgeirs kom m.a. frá einum nemanda hans! 


Aftur á yfirlitssíðu

Scroll to Top