Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2026
Halldór Baldursson, kennari við Myndlistaskólann í Reykjavík fyrir framúrskarandi myndlistarkennslu
Halldór lauk lauk námi grafíkdeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1989 og meistaragráðu í listkennslufræðum frá Listaháskóla Íslands 2022. Meistaraverkefni hans Hvað nú?-myndasaga um menntun var gefin út sem bók, sjá hér. Síðan 2022 hefur Halldór starfað sem yfirkennari á teiknibraut Myndlistaskólans í Reykjavík. Hann hefur einnig kennt við Listaháskóla Íslands. Halldór hefur starfað sem sjálfstætt starfandi teiknari frá árinu 1989 og býr yfir áratuga reynslu af blaðateikningum, skopmyndagerð, myndskreytingum á bókum. Halldór hefur myndskreytt fjölda barnabóka, kennslubóka og bækur fræðilegs eðlis.
Halldór þykir einstakur myndlistarkennari. Hann sýnir nemendum sínum virðingu og einlægan áhuga. Leiðsögn hans felst ekki hvað síst í spurningum, ígrundun og hvatningu og skapar þannig andrúmsloft náms og trausts. Í teiknideildinni sem hann veitir forstöður vinnur ungt fólk fjölbreytt og metnaðarfull verkefni. Unnið er með tækni og handverk um leið og einstaklingseinkenni, listræn sýn og sköpunarkraftur hvers og eins fær notið sín
Í umsögn sem fylgdi tillögu um tilnefningu hans til Íslensku menntaverðlaunanna segir m.a.:
Það segir sína sögu að margir fullorðnir nemendur sækja námskeið hjá honum aftur og aftur. Slík endurkoma er sterk vísbending um traust, gæði og þá námsreynslu og rými sem hann skapar.
Halldór er ekki aðeins öflugur kennari heldur einnig mikilvæg fyrirmynd fyrir ungt og upprennandi listafólk. Augljóst er að hann hefur metnað fyrir faginu, bæði í eigin kennslu og með því að fá til samstarfs listafólk sem hann telur fremsta á sínu sviði. Slík afstaða sýnir bæði faglega auðmýkt og skýra sýn á það hvernig byggja megi upp öflugt lærdómssamfélag í listnámi.
Á grundvelli þess sem ég hef séð og upplifað tel ég Halldór Baldursson afar verðugan fulltrúa þeirra kennara sem skara fram úr á sínu sviði.