Hrund Teitsdóttir, kennari í Hríseyjarskóla 

Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2023

Hrund Teitsdóttir, kennari í Hríseyjarskóla 

Hrund er tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna 2023 fyrir nýsköpunarkennslu, upplýsingatækni og menntun til sjálfbærni í tengslum við alþjóðlegt samstarf.

Hrund lauk B.Ed.-prófi frá Háskólanum á Akureyri 2011. Hún stundar nú nám til viðbótardiplómu í lestrarfræðum frá HA og stefnir á ljúka meistaranámi að ári. Hrund er nú umsjónarkennari í Hríseyjarskóla á mið- og unglingastigi. Í endurmenntun sinni hefur hún lagt áherslu á þætti sem stuðla að bættri líðan nemenda og að byggja upp sjálfstraust barna og jákvæða menningu í kennslustofunni, auk þess að leggja sérstaka rækt við læsi og upplýsingatækni.

Undanfarin tvö ár hefur Hrund  unnið að Erasmus plus verkefninu Island Schools/ iSHRINK sem hefur það að markmiði að koma á tengslum eyjaskóla í Evrópu og stuðla að samstarfi þeirra á milli um nýsköpun í menntun með áherslu á viðfangsefni tengd sjálfbærni. Verkefninu er einnig ætlað  að veita nemendum í einangruðum eða fámennum skólum metnaðarfull námstækifæri þar sem áhersla er á virka samfélagsþátttöku þeirra og möguleg áhrif nemenda á framtíðarsýn um sjálfbærni samfélagsins sem þeir búa í.   

 Í umsögn með tillögu að tilnefningu Hrundar sagði m.a. annars:   

Hrund er stórkostlegur leiðtogi, hvetjandi og drífandi kennari sem ber hag samfélagsins síns fyrir brjósti. Það skín í gegn að hún leitast alltaf við að vinna með styrkleika nemenda og er einstaklega útsjónarsöm við að finna nemendum farveg í námi sem hentar þeim og nýtir upplýsingatækni mikið í þeim tilgangi. Vandamál virðast ekki vera til í hennar orðabók og hún gengur í öll verkefni til að finna skapandi og viðeigandi lausnir. Hún hefur einstaklega uppbyggjandi viðhorf til nemenda sem birtist í djúpum skilningi á því að hver nemandi er einstakur og þannig leitast hún við að mæta hverjum nemanda á eigin forsendum. Það er afar mikilvægt fyrir nemendur og skólastarf í svo fámennum skóla … 

Í allri sinni kennslu hefur Hrund unnið markvisst með valdeflingu nemenda, þ.e. fundið styrkleika hvers nemanda. Valdefling nemenda hefur birtst í því að þeir hafa haft áhrif á samfélagið sem þeir búa í, hitt ráðamenn og deilt með þeim hugmyndum sínum og krafist samvinnu og úrbóta. Til að halda utan um svona kennslu þarf sterkan leiðtoga og þar hefur Hrund sannarlega dregið vagninn.