Hvatningarverðlaun 2025


Hvatningarverðlaunin 2025 fær Háaleitisskóli í Reykjanesbæ fyrir að hafa tekist að skapa einstakan fjölmenningarlegan skóla sem getur orðið öðrum fyrirmynd.

Í Háaleitisskóla í Reykjanesbæ eru um 370 nemendur. Sjö af hverjum tíu nemendum í skólanum eru af erlendum uppruna og í skólanum eru töluð um 30 tungumál.

Í skólanum hefur tekist að skapa einstaklega jákvæða skólamenningu, m.a. með því að líta á fjölmenninguna sem styrk skólans. Þá hefur jákvæð áhrif á starfið að hafa félagsmiðstöðina í skólanum opna í frímínútum og í hádeginu. Einnig má nefna svokallað vellíðunarver, þar sem nemendur, sem þess þurfa, fá tímabundinn stuðning.

Í skólanum er móttökudeild, Friðheimar, fyrir nemendur af erlendum uppruna en þeir stunda þar íslenskunám í um það bil þrjá mánuði, áður en þeir byrja almennt nám í skólanum. Á sama tíma sækja þeir tíma í list- og verkgreinum, upplýsingatækni og íþróttum með bekknum sínum.

Við Háaleitisskóla starfar sérstakur nemendaráðgjafi sem er til staðar fyrir nemendur og veitir stuðning og ráðgjöf þegar þeir glíma við tilfinningalega eða félagslega erfiðleika, persónuleg vandamál eða önnur mál sem geta haft áhrif á vellíðan þeirra.

Í Háaleitisskóla hefur verið lögð sérstök rækt við foreldrasamstarf. Reynt er að styðja við foreldra við að setja sig inn í og skilja íslenskt skólakerfi, m.a. með því að bjóða regluleg námskeið sem hafa að markmiði að kynna þeim starfsemi skólans og íslenska menningu og um leið að efla samheldni í foreldrahópnum.

Háaleitisskóli er réttindaskóli UNICEF og tekur þátt í UNICEF-verkefninu: „Sjötta hvert barn“ þar sem sjónum er beitt að þeirri alvarlegu staðreynd að eitt af hverjum sex börnum í heiminum býr við afleiðingar stríðs og átaka. Nemendur taka þátt í myndlistasýningunni „Sjötta hvert barn“ sem opnuð verður 20. nóvember, á Alþjóðadegi barna, en sýningin verður meðal stærstu myndverkasýninga sem settar hafa verið upp hér á landi. Hún verður jafnframt sett upp í skólanum.

Skólastjóri Háaleitisskóla er Unnar Stefán Sigurðsson og aðstoðarskólastjóri Jurgita Milleriene. Þess má geta að Jurgita er Lithái og hefur búið á Íslandi í aldarfjórðung. Það kemur sér vel í skólastarfinu að hún talar pólsku, rússnesku og litháísku en margir nemendur í skólanum koma frá Austur Evrópu.

Mat viðurkenningarráðs er að þetta metnaðarfulla og fjölmenningarlega skólastarf sé til fyrirmyndar og því beri að veita skólanum hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna 2025.

Scroll to Top