Ingibjörg Jónasdóttir

Framúrskarandi kennari
Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2025 

Ingibjörg Jónasdóttir, leikskólakennari við leikskólann Rauðhól í Reykjavík,
fyrir farsælt brautryðjendastarf í leikskólakennslu
 

Ingibjörg Jónasdóttir lauk leikskólakennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands 2002 og viðbótardiplómu í uppeldis- og menntunarfræði á meistarastigi með áherslu á fjölmenningu frá Háskóla Íslands 2010. 

Ingibjörg hefur starfað hjá leikskólum Reykjavíkurborgar frá 1991 og sem leikskólakennari frá 2002. Hún er nú verkefnisstjóri fjölmenningar við leikskólann Rauðhól þar sem hún þykir fyrirmynd og leiðtogi í öllu starfi skólans. Hún hefur sterka faglega sýn og jákvæðni að leiðarljósi og hefur átt einkar farsælt samstarf við foreldra, börn og starfsfólk og verið fyrirmynd fyrir nýtt starfsfólk.

Ingibjörg þykir hafa einstaka hæfileika til að hvetja og virkja fólk á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Hún býr yfir þeim hæfileika að greina styrkleika samstarfsfólks og nýta þá á markvissan hátt. Handleiðsla hennar og leiðsögn eru oft svo náttúruleg og nærgætin að fólk tekur varla eftir því hve áhrifarík hún í raun er. Hún treystir samstarfsfólki og nemendum til að axla ábyrgð og gefur þeim svigrúm til að vaxa í sínu hlutverki. 

Ingibjörg hefur verið leiðandi í faglegri þróun Rauðhóls og hefur m.a. leitt nýsköpun í gegnum skapandi starf með einingakubba. Hún hefur haldið fyrirlestra og námskeið um það efni. Hún hlaut styrk úr Sprotasjóði árið 2021 fyrir verkefnið Leikur að læsi í gegnum einingakubba, með áherslu á læsi drengja. Þetta verkefni varð kveikjan að fjölmennri ráðstefnu árið 2023. Ráðstefnan bar heitið Einingakubbar og flæði og vakti mikla athygli. Ingibjörg á einnig stóran þátt í gerð læsisáætlunar Rauðhóls sem kom út 2024. Draumur hennar er að halda þessu þróunarstarfi áfram. Þá hefur hún verið með nema nánast á hverju ári síðan leikskólinn opnaði eða frá árinu 2007 og sinnt nýliðafræðslu í skólanum frá byrjun. 

Inga hefur haft jákvæð áhrif á börn, foreldra og samstarfsfólk. Samstarfsfólk lýsir henni sem leiðtoga sem hvetur með fyrirmynd sinni og styður nýja kennara af kærleika og fagmennsku.  

Í greinargerð sem fylgdi tillögu um tilnefningu Ingibjargar sagði meðal annars:  

Inga er mikil fyrirmynd í faglegri forystu innan leikskólastarfs. Hún er afar lærdómsfús og sækist eftir því að fá nema í vettvangsnám til sín, þar sem hún nýtur þess að tengjast nýjustu fræðum og þróa sig áfram í gegnum samtal og samvinnu. Sjálf var ég nemi hjá Ingu í eitt ár og upplifði hana sem traustan og nærgætinn leiðbeinanda sem studdi mig bæði faglega og persónulega. Hún hjálpaði mér að halda utan um skipulag í krefjandi aðstæðum og var mér mikil stoð í gegnum lokaár mitt í leikskólakennara náminu. Leiðsögn Ingu einkennist af hlýju og hreinskilni, hún veitir uppbyggilega endurgjöf, hrósar af rausn og eflir sjálfstraust með samræðum og samvinnu. Fundir með Ingu skilja alltaf eftir sig jákvæða orku. Hún stjórnaði ekki með fyrirmælum, heldur tók virkan þátt í lærdómnum með mér í ferlinu.  

————– 

 

Scroll to Top