Viðurkenningarráð Íslensku menntaverðlaunanna hefur tilkynnt hver hljóta tilnefningu til verðlaunanna í ár. Þetta er í sjöunda skipti sem verðlaunin eru veitt eftir að þau voru endurreist 2020. Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum, auk hvatningarverðlauna.
Tilnefningar í flokki framúrskarandi menntastofnana má sjá hér (smellið á heitin til að sjá greinargerðirnar):
- Leikskólinn Gefnarborg í Suðurnesjabæ fyrir fjölbreytt og og markvisst þróunarstarf, m.a. starfshætti sem eru kenndir við læsistengda skynjun þar sem læsi, skynjun, leikur, sköpun og útinám fléttast saman með markvissum hætti.
- Grundaskóli á Akranesi fyrir fjölbreytt og gróskumikið og margháttað þróunarstarf sem hefur m.a. beinst að því að koma sem best til móts við ólíkar þarfir nemenda.
- Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti fyrir að þróa einstaklingsmiðað nám sem hefur það að markmiði að þroska með nemendum hæfni sem gerir þeim fært að takast á við fjölbreytt viðfangsefni daglegs lífs.