Íslenskubrú Breiðholts

Þróunarverkefni
Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2025 

Íslenskubrú Breiðholts – samstarfsverkefni um að efla íslenskukennslu barna með annað móðurmál en íslensku 

Íslenskubrú Breiðholts er verkefni sem ætlað er að leiða saman grunnskólana fimm í hverfinu til að efla og samhæfa kennslu í íslensku sem öðru tungumáli, vinna að fjölmenningarlegum kennsluháttum í samvinnu við starfsfólk og efla samstarf skóla og heimila barna af erlendum uppruna frá upphafi grunnskólagöngu þeirra.  

Markmið Íslenskubrúar er þrískipt. Í fyrsta lagi að byggja upp markvissar náms- og kennsluáætlanir fyrir íslensku sem annað mál með hliðsjón af aðalnámskrá grunnskóla. Í öðru lagi að þróa náms- og kennsluhætti á breiðum grundvelli til að koma til móts við nemendur af erlendum uppruna, hvort sem það er í íslensku, öðrum námsgreinum eða í frímínútum. Í þriðja lagi að virkja foreldra til meira samstarfs um íslenskunám barna sinna og í fjórða lagi að móta gögn og leiðir sem hægt er að nýta á landsvísu til kennslu íslensku sem annars máls. 

Til að vinna þessum markmiðum brautargengi unnu allir skólarnir saman að því að útbúa faglega umgjörð um kennslu íslensku sem annars máls í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla til að nemendur geti gengið að því vísu að fá sömu gæðakennslu óháð skóla. Fagleg umgjörð felur m.a. í sér námsþætti, námsviðmið, kennsluáætlanir, námsgagnayfirlit, árangursríka og fjölbreytta kennsluhætti og námsmat. Kennarar útbjuggu einnig á annan tug þjálfunarhefta í íslensku sem öðru máli. Þá hefur verið haldið úti öflugum samráðsvettvangi fyrir þau sem kenna íslensku sem annað tungumál. Mat þeirra sem til þekkja er að kennurum hafi tekist að  útbúa öfluga og fjölbreytta verkfærakistu þar sem reynt er að þræða saman allar hliðar kennslu íslensku sem annars máls. Afraksturinn talar sínu máli en á heimasíðu verkefnisins má finna kennsluáætlanir, orðaforðalista, námsefni, verkefni, námsmat, leiðbeiningar fyrir kennslu og ýmislegt fleira. 

Úr umsögn sem fylgdi tillögu um tilnefningu:  

Það er óhætt að segja að kennarar hafi látið hendur standa fram úr ermum og tókst þeim að útbúa svo eftir sé tekið öfluga umgjörð fyrir íslensku sem annað mál, farsælt jafningasamfélag þar sem kennarar þróa sína kennsluhætti áfram og eru einnig einstaklega jákvæðir fyrir því að deila öllum sínum afurðum, ekki bara innan hverfisins heldur á landsvísu. Það hefur verið gert m.a. með heimasíðunni þeirra (Íslenskubrú Breiðholts), kynningarmyndböndum og síðast en ekki síst glæsilegri námstefnu þar sem átján kennarar í grunnskólum Breiðholts héldu málstofur þar sem kennarar, stjórnmálafólk og aðrir áhugasamir mættu, en yfir 200 manns sóttu námstefnuna.  

Verkefnið var styrkt af mennta- og barnamálaráðuneyti í gegnum nýsköpunar- og starfsþróunarsjóð. 


Aftur á yfirlitssíðu

Scroll to Top