Jónína Lovísa Kristjánsdóttir

Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 

Jónína Lovísa Kristjánsdóttir, sérkennari við Egilsstaðaskóla og kennsluráðgjafi hjá Múlaþingi, fyrir einstakt framlag til menntunar, velferðar og farsældar barna og ungmenna 

Jónína lauk leikskólakennaraprófi frá Fósturskóla Íslands 1996 og öðlaðist réttindi til að kenna í grunnskóla 2004 eftir að hafa lagt stund á framhaldsnám í sérkennslufræðum við Sheffield háskólann í Englandi. Hún lauk meistaraprófi í menntavísindum 2014 með áherslu á sérkennslu og hafði áður verið í íslenskunámi við Háskóla Íslands. Árið 2023 bætti hún við sig diplómu í stjórnun frá Háskólanum á Akureyri.

Jónína kenndi í 15 ár við leikskólann Tjarnarland en undanfarin 15 ár við Egilsstaðaskóla. Samhliða kennslu hefur hún gegnt stjórnunarstörfum og lagt sitt af mörkum til þróunar skólastarfs. Hún hefur lagt mikla áherslu á starfsþróun, sótt námskeið bæði á Íslandi og erlendis og sérhæft sig á sviði félagsfærni, samskipta og stuðnings við börn með fjölbreyttar þarfir. Þekkingu sina hefur hún nýtt markvisst í fjölbreyttum störfum sinum.

Í kennslu sinni leggur Jónína megináherslu á að mynda traust og mæta nemendum þar sem þeir eru staddir með virðingu; það kallar á að lesa í hópinn eða einstaklinginn og vera tilbúin að fara ólíkar leiðir að markmiðinu.

Jónína hefur sinnt ráðgjöf og stuðningi við kennara, stjórnendur og foreldra og er að mati samstarfsfólks mikilvæg fagleg fyrirmynd. Þekking hennar, reynsla og leiðtogahæfni hefur haft jákvæð áhrif á nemendur, samstarfsfólk og skólasamfélagið í heild. Um ráðgjöf hennar sagði m.a. í umsögn sem fylgdi tillögu um tilnefningu:

Jónína er eftirsóttur ráðgjafi innan skólans og utan. Samstarfsfólk leitar reglulega til hennar eftir stuðningi og ráðgjöf. Hún bregst hratt við, miðlar þekkingu sinni af rausn og leggur ríka áherslu á samstarf. Hún hefur einnig byggt upp traust samband við foreldra og miðlar reglulega fræðslu og upplýsingum sem styðja við farsælt samstarf heimila og skóla.

Umsagnir um kennslu Jónínu sem fylgdu tillögum um tilnefningu lýsa vel hæfni hennar:

Það sem einkennir Jónínu þó umfram margt annað er einstök nærvera hennar og hæfni til að mynda sterk og jákvæð tengsl við nemendur. Hún mætir þeim af hlýju, virðingu og einlægum áhuga og hefur þann hæfileika að láta hvert barn finna að það skipti máli. Með fagmennsku sinni og mannlegri nálgun hjálpar hún þeim að efla sjálfstraust sitt, finna styrkleika sína og takast á við verkefni lífsins.

Jónína er fyrirmynd í starfi, leiðtogi á sínu sviði og sannkallaður talsmaður farsældar barna. Starf hennar hefur haft djúpstæð og varanleg áhrif á ótal nemendur, fjölskyldur og samstarfsfólk.


Yfirlit um tilnefningar 2026

 

 

Scroll to Top