Laufey Einarsdóttir

Framúrskarandi kennari
Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2025 

Laufey Einarsdóttir, grunnskólakennari í Sæmundarskóla, fyrir faglega, hugmynda- og árangursríka stærðfræðikennslu 

Laufey lauk kennaraprófi 2006 frá Kennaraháskóla Íslands. Áður hafði hún lokið B.A. prófi í listasögu frá Kaupmannahafnarháskóla. Laufey hefur kennt við Sæmundarskóla í Reykjavík síðastliðinn áratug.

Laufeyju þykir hafa tekist einstaklega vel að glæða áhuga nemenda á stærðfræðinni um leið og hún gefst aldrei upp við að leita leiða til að hjálpa þeim að ná færni og er dugleg að horfa út fyrir boxið eins og það var orðað í umsögn um kennslu hennar. Hún þykir einstaklega lagin við að tengja stærðfræði við sköpun og nemendur fá tækifæri til að beita skapandi aðferðum og listfengi við úrlausn verkefna (t.d. með gerð stærðfræðilegra líkana). Þá notar hún hlutbundin gögn til að hjálpa nemendum að skilja með eigin augum hvernig stærðfræðin virkar. 

Laufey skipuleggur kennslu sína eftir aðferðum leiðsagnarnáms og hefur á undanförnum árum verið að tileinka sér þær aðferðir sem kenndar hafa verið við Hugsandi skólastofu og fléttar þær inn í kennsluna með hugvitssamlegum verkefnum. Þá leggur hún sig fram við að gera námið einstaklingsmiðað og veita t.d. nemendum sem eru sterkir námsmenn tækifæri til að dýpka þekkingu sína. Þannig tekst henni með einstökum hætti að hjálpa nemendum að setja sér markmið og vinna á eigin forsendum.

Laufey fer fyrir kraftmiklu teymi stærðfræðikennara í skólanum og á haustin kynnir hún fyrir nemendum Boðorðin okkar í stærðfræði. Hugmyndina sækir hún til bresku fræðikonunnar Jo Boaler en hefur staðfært þau og aðlagað að nemendum (sjá mynd). Boðorðin eru sýnileg í kennslustofunni og hún notar þau markvisst í kennslunni.  

Úr umsögnum um kennslu Laufeyjar:

Metnaður Laufeyjar og fagmennska er slík að hún hefur ekki einungis náð að sá fræi metnaðar og áhuga hjá nemendum heldur teymir hún með sér aðra kennara skólans … kennarar sækjast í að vinna með henni, eiga faglegt spjall og búa þannig til samfellu í stærðfræðikennslu frá 1. til 10. bekkjar þar sem vinnubrögðin mynda eina heild út frá grunnhugsun … Fyrst og fremst er hún fagmanneskja sem nær með einstökum hætti til nemenda. Þegar þau voru spurð um störf Laufeyjar stóð ekki á svari: Hún er besti kennari sem ég hef haft. Hún er svo áhugasöm. Hún kennir okkur svo vel og spyr alltaf eftir útskýringar hvort hún geti útskýrt hlutina aftur eða betur eða öðruvísi … Mér hefur aldrei gengið vel í stærðfræði fyrr en núna. Ég trúi því að ég geti lært stærðfræði. 

Laufey hefur skrifað greinar um stærðfræðimenntun, haldið námskeið og fræðslufundi fyrir kennara, komið að stundakennslu við Háskóla Íslands og unnið að fjölmörgum verkefnum á vettvangi Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Hún er virk í starfi Flatar -samtaka stærðfræðikennara og er sem stendur í ritnefnd Flatarmála, vefrits samtakanna. 


Aftur á yfirlitssíðu

Scroll to Top