Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2026
Leikskólinn Gefnarborg í Suðurnesjabæ fyrir fjölbreytt og og markvisst þróunarstarf með áherslu skynjun, málskilning, útinám og inngildingu

Leikskólinn Gefnarborg í Suðurnesjabæ er fjögurra deilda skóli fyrir um 100 börn.
Í skólastarfinu er megináhersla á grunnþætti menntunar: læsi, sjálfbærni, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti, heilbrigði og, velferð og sköpun. Frjáls leikur er undirstaðan í starfinu og er honum gefinn góður tími með það að markmiði að efla samskipti og leikgleði barnanna. Börnin læra og þroskast í gegnum leik og hið daglega starf, þau geta valið sér viðfangsefni og fá tækifæri til að leika sér á eigin forsendum. Í Gefnarborg eru börn af mismunandi þjóðernum og kapp lagt á inngildandi starf.
Leikskólinn er kunnur fyrir þróunarverkefnið Læsistengd skynjun. Verkefnið byggist á vinnu með læsisþættina þar sem leitast er við að tengja þá við skynjun út frá efni í sögum, söngvum og ljóðum. Lögð er áhersla á að börnin öðlist færni í skynreiðu (e. sensory integration) með fjölbreyttum verkefnum sem reyna á skilningarvitin; snertingu, heyrn, sjón, lykt, bragð, jafnvægis- og stöðu- og líffæraskyn. Jafnframt felst þetta í að styðja börn í að þróa heilbrigði og velferð, athygli og samhæfingu með fjölbreyttum viðfangsefnum þar sem reynir á hreyfingu og skynjun. Markvisst er leitast við að örva forvitni, ímyndunarafl og tilfinningaleg tengsl við umhverfið. Í leikskólanum eru sérstök skynjunarrými með fjölbreyttum efnivið sem örvar öll skynfæri. Þar er lögð áhersla á að skapa rólegt og notalegt umhverfi þar sem börnin fá tækifæri til að hægja á, finna ró og vinna með skynjun á fjölbreyttan hátt.
Útinám er stór þáttur í starfinu og í læsistengdri skynjun. Í útinámi fá börnin tækifæri til að kynnast náttúrunni og nærumhverfi sínu, rannsaka, spyrja spurninga og nýta skynfærin á margvíslegan hátt. Áhersla er lögð á að börnin læri að bera virðingu og umhyggju fyrir náttúrunni og upplifi gleði og vellíðan í útiveru.
Leikskólinn hefur einnig unnið að verkefni sem nefnist Menningararfleifð í læsistengdri skynjun. Í verkefninu kynntust börnin barnabókmenntum, þjóðsögum, lögum og kvæðum frá mismunandi menningarheimum með fjölskynjun að leiðarljósi. Rýnt var í tengsl barna og kennara, samskipti og orðræðu kennara og möguleika til að jafna stöðu barnanna í hópnum. Einnig var samstarf við foreldra eflt og þeir hvattir til þátttöku.
Í umsögn sem fylgdi tilnefningu sagði m.a.:
Stjórnendum hefur tekist að efla starfsfólk sitt í gegnum kraftmikið og skemmtilegt starf með börnum þar sem starfsþróun er stór hluti af starfinu sjálfu. Börnum með fjölbreyttar þarfir og áskoranir reynist auðvelt að taka fullan þátt í verkefnum sem tengjast læsistengdri skynjun þar sem þau nýta skynfærin á fjölbreyttan hátt og þann hátt sem hverjum og einum hentar.
Heimildir um starfið í Gefnarborg:
- Grein í Víkurfréttum 2025: „Einstaklingur með góðan orðaforða er með góða sjálfsmynd“. Metnaðarfullt og skapandi verkefni á leikskólanum Gefnarborg í Garði
- Grein í Skólaþráðum 2022: Skynreiða að leiðarljósi í námi barna.
- Heimasíða Gefnarborgar