Listasafn Íslands

Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2024 – Skólar og aðrar menntastofnanir

 Listasafn Íslands fyrir öflugt fræðslustarf og að gefa út Sjónarafl – þjálfun í myndlæsi, metnaðarfullt og framsækið námsefni í mynd– og menningarlæsi sem nýtist ólíkum nemendahópum á öllum skólastigum 

Listasafn Íslands hefur á undanförnum árum lagt sérstakan kraft í fræðsluhlutverk safnsins með nýjum fræðsluleiðum, þróun námsefnis og áherslu á virkt samtal við kennara og skólasamfélagið.  

Meðal nýmæla má nefna Kennaraklúbbinn en þar taka nú þátt rúmlega 250 kennarar. Markmið hans er að mynda jákvæð tengsl við kennara og koma upplýsingum um efni og starfsemi sem mögulega gæti nýst í kennslu með beinum hætti til þeirra sem starfa í skólunum. Þá hefur starfsfólk safnsins verið að þróa fjarkennslu í samvinnu við nokkra grunn- og framhaldsskóla og stefnt er að  átaki í fjarkennsluþróun til þess að efla þjónustu við landsbyggðina. Enn má nefna verkefnið Ísabrot – jöklar í íslenskri myndlist þar sem unnið var með starfandi listamönnum að gerð skapandi listasmiðja í tengslum við jökla þar sem unnið var þverfaglega með skólum um allt land. Afrakstur þess efnis var tekinn saman í útgáfu fyrir kennara.  Þá má einnig nefna samstarf Listasafnsins við Þjóðminjasafn Íslands og Náttúruminjasafn Íslands um Safnaþrennuna, en Tækniskóli Íslands hefur einnig komið að því verkefni. Listasafnið vinnur nú að verkefninu „Stattu og vertu að steini“ þar sem unnið er með þjóðsögur í íslenskri myndlist. Þátttakendur í því verkefni eru meðal annars Sinfóníuhljómsveit Íslands, Rauði krossinn og Ingunnarskóli þar sem unnið er með nýjum Íslendingum og þjóðsögurnar verða nýttar sem grunnur að skapandi starfi.  

Veigamikið framlag Listasafnsins er fólgið í útgáfu námsefnisins Sjónarafls. Námsefnið miðar að því að opna augu barna fyrir myndlæsi þar sem áhersla er lögð á að skerpa athyglina, auka orðaforða, samræður, virka hlustun, hugtakaskilning og gagnrýna hugsun. Sjónarafl byggir annars vegar á grunnaðferð til þjálfunar í myndlæsi almennt með verkfærum myndlistar og skipulagðri samræðutækni, en hins vegar teflir útgáfan fram völdum listaverkum í eigu þjóðarinnar með þessa kennsluaðferð til viðmiðunar, ásamt aðgengilegum upplýsingum um hvert verk og kennsluleiðbeiningum eða kveikjum. Framsetning námsefnisins er skýr og auðveld til notkunar á öllum skólastigum og er námsefnið gefið út bæði sem bók og á veflægu formi, aðgengilegu á heimasíðu safnsins. Með útgáfunni er einnig verið að kynna menningu þjóðarinnar á framsækinn og áhugaverðan hátt.  

Sjónarafl var m.a. þróað með aðferðafræði starfendarannsókna í samvinnu við kennara og nemendur  Barnaskóla Hjallastefnunnar. Efnið er nú komið í notkun í mörgum skólum og viðbrögð við því sérstaklega góð.  Mikil aðsókn er í námskeið safnsins fyrir kennara um notkun Sjónaraflsaðferðarinnar í kennslu. 

Hér er sagt frá verkefninu Sjónarafli í tilefni þess að verkefnið var tilnefnt til Íslensku safnaverðlaunanna 2024: https://fb.watch/slwwqjR_Hd/ 



 

 


Yfirlit um tilnefningar 2024


Scroll to Top