Lítil skref á leið til læsis

Þróunarverkefni
Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2025 

Lítil skref á leið til læsis – samstarf leik- og grunnskóla um málörvun og læsi 

Verkefnið Lítil skref á leið til læsis er samstarfsverkefni Borgarhólsskóla og leikskólans Grænuvalla á Húsavík. Verkefnið skiptist í tvo meginþætti, annars vegar aukið samráð kennara á báðum stigum um að efla málþroska og læsi og hins vegar foreldrafræðslu. Markmið verkefnisins er meðal annars að vinna að því að styrkja samstarf skóla og heimila við flutning barna frá leikskóla yfir í grunnskóla og stuðla að eðlilegri samfellu í náminu.  

Leik- og grunnskólakennarar hittast reglulega og bera saman bækur sínar, auk þess að undirbúa aldursblandaða kennslu og gagnkvæmar heimsóknir til að fylgjast með starfinu. Aldursblandaða kennslan byggist m.a. á hringekjum þar sem nemendur vinna í hópum að fjölbreyttum verkefnum. Leikir og útinám koma einnig við sögu. Þá hafa læsisstefnur skólanna verið samræmdar. Niðurstöður skimana eins og Hljóm-2, Tras og Mio, auk Lesfimi eru nýttar með markvissum hætti til að auðvelda snemmbæran stuðning við nemendur með einstaklingsnámskrám.  

Áhugaverður þáttur í verkefninu er aðkoma sjúkraþjálfara. Sjúkraþjálfarinn hefur kannað fínhreyfingar barnanna og síðan hafa þau börn sem mest þurfa á því að halda fengið markvissa þjálfun. Eins leiðbeindi sjúkraþjálfarinn börnunum um líkamsstöðu, t.d. hvernig best er að bera sig að þegar fengist er við ritunarverkefni, auk þessa að búa til ýmis verkefni (t.d. fínhreyfibækur). 

Á þessu ári er athygli beint að samvinnu heimilis og skóla og foreldrafræðslu. Sérstök könnun var lögð fyrir foreldra þar sem álits þeirra var leitað um hvað þeir hefðu mestan áhuga á að fræðast um. Leitað verður til sérfræðinga við Háskólann á Akureyri sem munu fræða foreldra um málörvun og sjúkraþjálfari mun leiðbeina þeim um þjálfun fínhreyfinga. Þá munu kennarar beggja skólanna kynna foreldrum markmið verkefnisins og þær leiðir sem farnar eru.  

Afurð verkefnisins verður leiðarvísir sem kennarar geta nýtt sem ramma eða kveikju fyrir hliðstæð verkefni og þar verður að finna hugmyndir um hvernig hægt er að vinna faglega að því að efla samstarf á mörkum skólastiga með aðkomu kennara, foreldra og barna. Stefnt er að því að kynna verkefnið á ráðstefnum kennara, í kennaranámi og í menntabúðum kennara.  

Verkefnið hefur hlotið styrk frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. 

Heimasíður verkefnisins:  


Aftur á yfirlitssíðu 

 

 

 

Scroll to Top