Menntabúðir um læsi, tækni og skapandi starf verða haldnar í Sögu, aðsetri menntavísindasviðs HÍ, mánudaginn 20. apríl kl. 14-16. Menntabúðir er samkoma þar sem fólk kemur saman til þess að miðla af eigin reynslu og þekkingu og afla sér fróðleiks frá öðrum þátttakendum. Samtal er í aðalhlutverki í menntabúðum.
Allar kynningar fara fram í opnu rými á Menntavísindasviði HÍ í Sögu (áður Hótel Saga við Hagatorg í vesturbæ Reykjavíkur). Auk Menntabúðanna sjálfra verður hægt að skoða nýtt húsnæði menntavísindasviðs.
Það eru Mixtúra sköpunar- og upplýsingatækniver skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur sem heldur menntabúðirnar í samstarfi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og fleiri góða samstarfsaðila sem halda menntabúðirnar.
Menntabúðir eru opnar öllum og ekki þarf að skrá sig á viðburðinn fyrir fram.
Nánari dagskrá er að finna hér.
Fólk er hvatt til að kíkja á gleðistund á Stúdentakjallaranum eftir að dagskrá líkur og fagna grósku í menntakerfinu með öllum áhugasömum.
Þessi frétt er uppfærsla á fyrri frétt frá sama viðburði þann 26. mars 2026, sem varð að fella niður sökum veðurskilyrða á höfuðborgarsvæðinu og ný dagsetning á viðburðinn er því auglýst hér.