Iðn- og verkmenntun: Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2026
Menntaskólinn á Ísafirði fyrir Tímatökuhúsið – verkefni sem sýnir hvernig iðnmenntun getur tengst samfélaginu á uppbyggilegan hátt

Verkefnið Tímatökuhúsið er framúrskarandi samstarfs- og þróunarverkefni á vegum húsasmíðabrautar Menntaskólans á Ísafirði. Verkefnið fólst í hönnun og smíði tímatökuhúss fyrir Skíðafélag Ísafjarðar sem síðar var flutt upp á skíðasvæðið í Tungudal til notkunar við tímatöku í alpagreinum.
Verkefnið hófst haustið 2024 og lauk vorið 2026 og var samþætt lykiláföngum námsins. Markmið verkefnisins var að skapa raunverulegt námsumhverfi þar sem nemendur gætu tekið þátt í heildstæðu byggingarverkefni frá hugmynd að fullbúnu mannvirki. Nemendur komu að öllum helstu þáttum framkvæmdarinnar og öðluðust þannig dýrmæta verklega reynslu samhliða bóklegu námi.
Verkefnið hefur verið afar vel heppnað og sýnir með skýrum hætti hvernig iðnmenntun getur tengst samfélaginu á uppbyggilegan hátt. Nemendur skiluðu af sér vönduðu mannvirki sem nýtist samfélaginu til framtíðar og fengu um leið tækifæri til að þróa fagmennsku, ábyrgð og samvinnu í raunverulegu verkefni.
Í umsögn sem fylgdi tillögu um tilnefningu sagði m.a.:
Tímatökuhúsið á skilið viðurkenningu sem framúrskarandi þróunarverkefni vegna þess að það sameinar á einstakan hátt verklegt nám, samfélagslega ábyrgð og raunveruleg verkefni sem hafa varanlegt gildi fyrir nærsamfélagið. Verkefnið sýnir hvernig iðn- og verkmenntun getur verið skapandi, fagleg og samfélagslega mikilvæg á sama tíma. Styrkleiki verkefnisins felst í virkri þátttöku nemenda sem fengu tækifæri til að vinna að raunverulegu mannvirki frá upphafi til enda. Slík reynsla eykur sjálfstæði, ábyrgðartilfinningu og faglega hæfni nemenda auk þess að styrkja tengsl milli náms og atvinnulífs. Verkefnið stuðlar að auknum námsáhuga og dýpri skilningi á mikilvægi góðrar verkmenntunar. Samstarfið við Skíðafélag Ísafjarðar undirstrikar einnig mikilvægi þess að skólar séu virkir þátttakendur í samfélaginu. Með verkefninu hafa nemendur ekki aðeins öðlast dýrmæta reynslu heldur einnig lagt sitt af mörkum til samfélagsins með mannvirki sem mun nýtast skíðafólki um ókomin ár. Verkefnið er því fyrirmynd að vönduðu og áhrifaríku þróunarstarfi í íslensku menntakerfi.