
Embætti forseta Íslands, mennta- og barnamálaráðuneyti, innviðaráðuneyti, Samtök iðnaðarins, Félag um menntarannsóknir, Grunnur – félag stjórnenda á skrifstofum fræðslumála í sveitarfélögum, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Kennarasamband Íslands, Listaháskóli Íslands, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Reykjavíkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök áhugafólks um skólaþróun hafa með sér samstarf um að veita árlega viðurkenningu fyrir framúrskarandi skóla- og frístundastarf eða aðrar umbætur í menntamálum. Verðlaunin heita Íslensku menntaverðlaunin.
Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístunda starfi og auka veg menntaumbóta. Verðlaunin eru veitt ár hvert og skulu þau bera ártal þess. Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum, auk sérstakrar hvatningar til aðila sem stuðlað hafa að framúrskarandi menntaumbótum.
A. Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur. Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki, til skóla eða annarrar menntastofnunar, sem stuðlað hefur að menntaumbótum er þykja skara fram úr.
B. Framúrskarandi kennari. Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki til kennara sem stuðlað hefur að menntaumbótum sem þykja skara fram úr.
C. Framúrskarandi þróunarverkefni. Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni eru veitt verkefnum sem standast ítrustu gæðakröfur um markmið, leiðir, inntak, mat og kynningu, hafa samfélagslega skírskotun og nýtast til að efla menntun í landinu. Til greina koma verkefni sem tengjast skóla- eða frístundastarfi, listnámi eða öðru starfi með börnum og ungmennum og hafa ótvírætt mennta- og uppeldisgildi.
D. Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun. Ein verðlaun veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla- eða menntastofnun fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar.
E. Hvatningarverðlaun til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr.
Tillögur skulu hafa borist fyrir 1. júní ár hvert. Opnað er fyrir nýja skráningu þegar verðlaunin hafa verið afhent í nóvember.
Viðurkenningarráð (sjá hér) velur þrjár til fimm tilnefningar í hverjum flokki til kynningar á alþjóðadegi kennara 5. október.
Verðlaunin eru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í nóvember.
- Veiting verðlaunanna 2025
- Veiting verðlaunanna 2024
- Veiting verðlaunanna 2023
- Veiting verðlaunanna 2022
- Veiting verðlaunanna 2021
- Veiting verðlaunanna 2020
Sjá nánar um verðlaunin í samkomulagi þeirra sem að þeim standa.
Upplýsingar um verðlaunin veitir verkefnisstjóri (Ingvar Sigurgeirsson í síma 896 3829, netfang: ingvar(hja)hi.is)
