Þróunarverkefni
Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2024
Menntun hugar og hjarta – nemandinn sem manneskja – þróunarverkefni í Háteigsskóla

Í Háteigsskóla í Reykjavík hefur verið unnið markvisst að því að efla sterka tilfinninga-, samskipta- og sjálfsþekkingargreind nemenda. Starfsfólk skólans hefur unnið að þróunarverkefnum í þágu nemenda með þessar áherslur að leiðarljósi. Verkefnin hafa fengið yfirheitið Menntun hugar og hjarta – nemandinn sem manneskja.
Vinna með nemendum miðar að því að öll séu þau virkir þátttakendur í eigin námi og að hlustað sé á þarfir hvers og eins. Leitast er við að efla tengsl nemenda við sjálfa sig og aðra svo að þau læri að taka ábyrgar og upplýstar ákvarðanir um líf sitt. Allir hlutar verkefnisins hafa hlotið Hvatningarverðlaun skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.
Verkefnin eru þessi:
Sjálfsþekking í þágu náms byggist upp á því að bjóða nemendum í 10. bekk markþjálfunarsamtöl á skólatíma hjá markþjálfa sem starfar við skólann. Viðtölin eru tvö á hvorri önn, að hausti og eftir áramót. Áhersla er lögð á að nemendur læri að skipuleggja sig og efla þau í að taka ábyrgð á eigin námi. Með þessu er leitast við að styðja við uppbyggingu jákvæðrar sjálfsmyndar og að nemendur verði betur í stakk búin til að takast á við fjölbreytt verkefni, hvort sem er í námi eða lífinu almennt.
Námstækni og markþjálfun er námsgrein fyrir nemendur í 5.-9. bekk. Í áfanganum er markvisst unnið með þætti sem lúta að tilfinninga- og samskiptagreind. Nemendur takast á við verkefni sem felast í því að líta inn á við, skoða eigin tilfinningar frá mismunandi sjónarhornum, í samvinnu við aðra og fá þannig tækifæri til að kynnast sjálfum sér betur.
Sólin: Kennslustundir í alhliða kynfræðslu, samskipta- og geðfræðslu beinist að því að nemendur í 7.-10. bekk fái alhliða fræðslu, byggða á öruggum heimildum og án fordóma. Áhersla er á mikilvægi samskipta, mörk og samþykki, jákvæða reynslu og forvarnir. Auk þess er fjallað um jafnrétti, kynjaðar staðalímyndir, kvenfyrirlitningu, líkamsímynd, hinsegin málefni, stafræna borgaravitund og fordóma.
Tenging er töff: tengslatímar fyrir einstaka nemendur og hópa til að sporna gegn jaðarsetningu og skólaforðun snýst um að efla samskipti og tengsl meðal nemenda með sértæku hópastarfi og einstaklingsmiðun. Umsjónarkennarar meta hvaða umfjöllunarefni er brýnt að ræða innan hvers hóps, svo sem skaðlegar karlmennskuhugmyndir, kynþáttafordóma, ofbeldi og vopnaburð. Einnig er boðið upp á tengslatíma fyrir nemendur sem sýna áhættuhegðun eða skólaforðun.
Úr umsögn með tillögu að tilnefningu:
Verkefnið Menntun hugar og hjarta – nemandinn sem manneskja svarar ákalli samfélagsins um að bregðast þurfi við áberandi bakslagi í viðhorfum ungs fólks, skólaforðun, auknu ofbeldi og tengslaleysi. Þá svarar það einnig kröfu samtímans um að búa þurfi ungt fólk betur undir þátttöku í síbreytilegu samfélagi framtíðarinnar.
Grein um verkefnin í Skólaþráðum: