Iðn- og verkmenntun: Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2026
Höfundar námsefnisins Matreiðsla fyrir framúrskarandi framlag til iðn- og verkmenntunar með því að semja heildstætt og vandað námsefni fyrir matreiðslunám á framhaldsskólastigi

Höfundar Matreiðslu eru matreiðslumeistararnir Hermann Þór Marinósson, Hinrik Carl Ellertsson, Ragnar Wessman, Ægir Friðriksson og Sigurður Daði Friðriksson.
Verkið byggist á tveimur vefbókum Matreiðsla – Matvælabraut 1 (sjá hér), sem leggur grunn að náminu, og Matreiðslu 2. og 3. þreps (sjá hér), sem byggir markvisst ofan á þann grunn og styður við áframhaldandi nám. Saman mynda þessi verk samfellda og skýra umgjörð um nám í matreiðslu.
Markmið höfunda er að efla gæði kennslu og náms í matreiðslu með því að þróa aðgengilegt, faglegt og raunhæft námsefni sem tekur mið af íslenskum aðstæðum, íslensku skólasamfélagi og þörfum atvinnulífsins. Efnið sameinar fræðilega undirstöðu, verklega nálgun og skýra tengingu við fagið sjálft. Þar er lögð áhersla á fagmennsku, vinnulag, hráefnisþekkingu, aðferðir, skipulag, ábyrgð, gæði og faglega dómgreind. Með þessu verki hefur verið lagður traustur fræðilegur og faglegur grunnur á íslensku sem styður bæði við kennslu, nám og þróun fagmáls í greininni.
Verkið hefur vakið athygli utan Íslands. Nú þegar hafa aðilar í Noregi, Færeyjum og Grænlandi lýst yfir áhuga á að þýða efnið yfir á sín tungumál og staðfæra og er sú vinna þegar hafin.
Mikilvægt er að undirstrika að námsefnið hefur verið markvisst lagað að þeim nemendahópi sem nýtir það. Þar má nefna að margir nemendur í greininni eiga við ADHD, lesblindu eða aðra námsörðugleika, og hefur efnið verið þróað með aðgengi og þátttöku þessa hóps sérstaklega í huga. Meðal annars er boðið upp á talgervil sem getur lesið efnið upp, möguleika á að breyta letri til að bæta læsileika fyrir nemendur með lesblindu, auk annarra útfærslna sem styðja við fjölbreyttar þarfir nemenda.
Í umsögn sem fylgdi tillögu að tilnefningu sagði m.a.:
Mikilvægi verksins felst ekki einungis í því að það er faglega vandað, heldur einnig í því að það markar tímamót í sögu matreiðslukennslu hér á landi. Með útgáfu þessara bóka hafa nemendur og kennarar í fyrsta sinn fengið heildstætt kennsluefni á íslensku sem er samið út frá íslenskum aðstæðum, íslensku námsumhverfi og raunverulegum þörfum fagsins … Höfundarnir sameina áratuga reynslu úr matreiðslu, stjórnun, kennslu og fagþróun og nýta þá breiðu hæfni til að skapa efni sem hefur bæði fræðilegt og hagnýtt gildi. Þeir hafa með þessu sýnt frumleika, ábyrgð og skýra framtíðarsýn um það hvernig iðn- og verkmenntun getur þróast á eigin forsendum, á íslensku og í nánu sambandi við fagið sjálft.