Framúrskarandi kennari
Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2025
Örvar Rafn Hlíðdal, íþróttakennari við Flóaskóla,
fyrir framúrskarandi íþróttakennslu og árangur í starfi

Örvar Rafn Hlíðdal lauk prófi í íþróttafræðum frá Háskóla Íslands 2011 og hefur verið íþróttakennari við Flóaskóla frá sama ári þar sem hann kennir öllum árgöngum skólans, íþróttir og sund. Örvar hefur einnig fengist við þjálfun og verið forstöðumaður félagsmiðstöðvar.
Örvar Rafn þykir einstaklega laginn við að ná til allra nemenda, eða eins og þetta var orðað í einni af umsögnunum þar sem mælt var með tilnefningu hans: Skiptir þá ekki máli hvort um er að ræða lítið vatnshrætt kríli sem þarf að hvetja og styðja til að taka fyrstu sundtökin eða hvort um ræðir öflugan ungling sem stundar íþróttir af kappi og þarf að hvetja til dáða … Hann hefur náð að virkja nemendur sem hafa haft lítil tækifæri til íþróttaiðkunar eða haft takmarkaðan áhuga. Því nær hann fram með sínu einstaka lagi og samtalstækni við nemendur.
Flóaskóli hefur undir leiðsögn Örvars tekið þátt í Skólahreysti undanfarin ár. Þó skólinn sé ekki fjölmennur, rétt ríflega 100 nemendur, hafa keppnislið skólans náð inn í úrslit ár eftir ár. Frá 2021 hefur skólinn tvisvar lent í þriðja sæti úrslitakeppninnar og tvisvar unnið keppnina. Slíkur styrkur er ekki tilviljun heldur markviss uppbygging þrautseigju, jákvæðni, óbilandi trúar á árangur, samkenndar og liðsheildar þar sem allir leggja sig 100% fram. Áhugavert er að Örvar nær þessum árangri án þess að hafa aðgang að íþróttahúsi. Hann kennir annars vegar úti að vori og hausti og hins vegar í félagsheimilinu Þingborg sem hefur íþróttadúk á gólfi. Hann hefur umbreytt sviði félagsheimilisins í æfingaaðstöðu fyrir Skólahreysti.
Örvar leggur áherslu á hollustu og heilbrigða lífshætti og er í þeim efnum góð og áhrifamikil fyrirmynd fyrir nemendur sína. Hann sýnir nemendum líka í verki hversu mikils virði það er að horfa á hagsmuni heildarinnar, að leggja sig fram fyrir hópinn og láta aldrei sitt eftir liggja við að aðstoða og hjálpa öðrum að ná markmiðum sínum.
Úr umsögnum sem fylgdu tillögu að tilnefningu:
Það skín af Örvari langar leiðir hversu gaman hann hefur af vinnu sinni. Hann heldur uppi góðum aga en gleðin er alltaf í fyrirrúmi. Hann leggur sig heilshugar fram við vinnuna sína og það smitar inn í nemendahópinn. Nemendum sýnir hann mildi og einlægan áhuga og byggir hvern einstakling upp út frá styrkleikum viðkomandi. Hann er traustur félagi nemenda sem líta upp til hans en á sama tíma er hann afar hæfur leiðtogi sem nær að hrífa nemendur með sér til að takast á við sérhverja áskorun sem þeir standa frammi fyrir. Örvar er auk alls þessa mjög skipulagður kennari sem sýnir mikinn faglegan metnað. Hann byggir kennslu sína upp út frá hæfniviðmiðum og viðmiðum um árangur þar sem hann horfir á 10 ára skólagöngu nemenda sem eina órofa heild þar sem hugað er að líkamlegri, andlegri og félagslegri vellíðan.