Rafmennt

Iðn- og verkmenntun
Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2024 

Rafmennt fyrir þróun sveigjanlegs og einstaklingsmiðaðs náms í raf- og tæknigreinum 

Rafmennt er einkarekin stofnun í eigu Rafiðnaðarsamband Íslands og Samtaka rafverktaka. Rafmennt annast fjölbreytt verkefni á sviði menntunarmála fyrir fagfólk í raf- og tækniiðnaði.  

Fyrir tveimur árum fékk Rafmennt formlega heimild til að reka framhaldsskóla. Að baki bjó að vaxandi aðsókn hefur verið að iðnnámi en framhaldsskólarnir ekki haft getu til að mæta þessari aukningu sem skyldi og þurft að vísa mörgum frá. Við mótun námsins var sérstaklega horft til eldri nemenda sem hafa tafist eða hætt í námi og starfa sem ófaglærðir á vinnumarkaði. Hér má nefna nemendur sem af einhverjum orsökum hafa ekki lokið námi á hefðbundnum tíma og eiga ekki afturkvæmt í skóla þar sem nemendur úr grunnskóla ganga fyrir. 

Rafmennt hefur heimild til að bjóða nám í rafvirkjun, rafveituvirkjun, rafeindavirkjun, hljóðtækni og kvikmyndatækni. 

Í grunninn er byggt á raunfærnimati eða hæfnimati skólans og framhald náms hvers og eins skipulagt með hliðsjón af því. Byggt er á fjölbreyttum kennsluháttum. Allt lesefni er á rafrænu formi nemendum að kostnaðarlausu og fjöldi myndbanda í rafmagnsfræði er aðgengilegur nemendum á netinu. Í bóklegum greinum er stuðst við vendikennslu og í verklegum greinum er kennslan byggð á verkefnum sem nemendur leysa. Sérstök áhersla er lögð að kennslufræði fullorðinna þar sem markhópur Rafmenntar eru nemendur sem eru að hefja nám eða ljúka námi að loknu námshléi.  

Námsmat er byggt á leiðsagnarmati þar sem því er við komið. Nemendur fá umsagnir í samtali við skil verkefna og fá þá leiðsögn um úrbætur fyrir lokaskil ef þess er þörf, en einnig er stuðst við hefðbundin próf. Afköst í verkefnavinnu og skil verkefna stjórna námshraða hvers og eins. Hvert viðfangsefni felur í sér verkefnaröð sem nemandinn leysir. Hver verkefnaröð er tengd áfangalýsingu og felur í sér fyrirfram ákveðinn einingarfjölda. Nemendur fá aðstöðu í skólanum til að vinna verkleg verkefni.  

Námið fer fram í dreifnámi sem sameinar fjarnám og staðnám. Í fjarnámi er notast við gagnvirka kennslu í rauntíma og upptökur. Nemendur hafa aðgang að húsnæði skólans þegar þeim hentar utan hefðbundins kennslutíma. Verkefnin eru byggð á sjálfstæðri vinnu og reynt er að koma sem best til móts við eldri nemendur sem eru á vinnumarkaði.  

Ef fram heldur sem horfir má reikna með að fyrstu nemendurnir útskrifist úr rafvirkjun í maí 2025. 

Við skólann starfar náms- og starfsráðgjafi sem er nemendum til aðstoðar við þau mál sem koma upp varðandi námið. Samskipti við kennara eru í formi viðtala á ákveðnum tímum en einnig með símtölum eða tölvupósti. 


Yfirlit um tilnefningar 2024


Scroll to Top