Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2026
Ragna Gunnarsdóttir, kennari í Flataskóla í Garðabæ, fyrir framúrskarandi kennslu á yngsta- og miðstigi
Ragna lauk kennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands 2003 með áherslu á kennslu yngri barna. Hún hefur einnig lokið tveimur viðbótardiplómum frá Háskóla Íslands í uppeldis- og menntunarfræðum og um farsæld barna. Ragna hefur kennt við Flataskóla frá brautskráningu, einkum sem umsjónarkennari á yngsta- og miðstigi, auk þess að kenna valnámskeið um leiklist.
Í kennslu sinni leggur Ragna mikla áherslu á jákvæðan og góðan bekkjarbrag. Hún setur nemendum sínum skýran ramma. Um áherslur sínar segir hún m.a.: Mér þykir ákaflega vænt um nemendur mína og finnst mikilvægt að koma til móts við þá þar sem þeir standa. Ég hef ávallt trú á nemendum mínum en hef einnig væntingar til þeirra. Ég legg áherslu á að innan skólastofunnar sé góð samvinna, vinátta og gagnkvæm virðing en leitast sömuleiðis eftir öflugri samvinnu í öllu starfi skólans og er ákaflega þakklát fyrir allt það frábæra fólk sem ég hef unnið með.
Ragna hefur tekið þátt í eða haft umsjón með ýmsum þróunarverkefnum í Flataskóla og verið í erlendu samstarfi (E-Twinning, Nordplus og Erasmus). Þá leiddi hún, ásamt Margréti Haraldsdóttur, innleiðingu Réttindaskólaverkefnisins í Flataskóla og var skólinn annar af tveimur skólum sem fyrstir hlutu Réttindaskólaviðurkenningu UNICEF hér á landi (sjá hér um þetta verkefni).
Í umsögn sem fylgdi tillögu um tilnefningu Rögnu til menntaverðlaunanna sagði m.a.
Ragna er framúrskarandi kennari sem hefur alla tíð sýnt einstakan metnað í starfi sínu. Hún er leiðtogi og fyrirmynd innan skólasamfélagsins, vinnur af mikilli fagmennsku og leggur sig fram um að skapa jákvætt og styðjandi námsumhverfi fyrir alla nemendur. Ragna er oft fyrst til að mæta í skólann og síðust til að fara heim og hikar ekki við að leggja á sig aukavinnu um helgar þegar þess þarf.
Ragna sýnir nemendum sínum einstaka hlýju, mannskilning og umburðarlyndi. Hún hefur jákvæð og varanleg áhrif á börnin sem hún starfar með og hvetur þau til að ná árangri bæði námslega og félagslega. Það er samdóma álit þeirra sem starfa með henni að fagmennska sé hennar helsti styrkleiki. Með reynslu sinni, eldmóði og óþrjótandi áhuga á velferð barna er Ragna afar verðug þess að hljóta tilnefningu sem framúrskarandi kennari.