Samkennd og sjálfræði – þróunarverkefni í Verzlunarskóla Íslands

Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2026  

Haustið 2022 var skólaþróunarverkefni hleypt af stokkunum í Verzlunarskóla Íslands undir yfirskriftinni Samvinna og sjálfræði – Heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna. Um var að ræða samþættingarverkefni sem tengdist dönsku, ensku, hagfræði, íslensku og upplýsingatækni. Nemendur unnu í tvær vikur í teymum og hvert teymi valdi eitt af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og áttu nemendur að koma með tillögur að umbótum sem tengdust viðkomandi markmiði. Verkefnið vakti mikla athygli og var m.a. tilnefnt til Íslensku menntaverðlaunanna 2023 (sjá hér). 

Haustið 2025 var ákveðið, með hliðsjón af hugmyndum frá nemendum og kennurum, að þróa verkefnið áfram og ákveðið að láta það snúast um að setja sig í spor annarra og láta gott af sér leiða í samfélaginu. Verkefninu voru sett þessi markmið:  

  • Hvetja nemendur til að leggja sitt af mörkum til samfélagsins og efla meðvitund þeirra um samfélagslega ábyrgð.
  • Styrkja samkennd, ábyrgðartilfinningu og gagnkvæma virðingu meðal nemenda.
  • Gefa nemendum tækifæri á að setja sig í spor annarra og sýna samhug.

Nemendur höfðu frjálsar hendur með að velja sér vettvang til að heimsækja og styðja. Höfðu þau um tvennt að velja, að vinna sjálfboðavinnu á viðkomandi stað eða skipuleggja viðburð í samvinnu við forsvarsmenn á viðkomandi vettvangi. Meðal þeirra aðila sem þau heimsóttu voru Alzheimer samtökin, Barnaspítali Hringsins, félagsmiðstöðvar, kirkjur, hjúkrunarheimili, Rauði krossinn og Þjóðgarðurinn á Þingvöllum svo nokkur dæmi séu gefin. Nemendur héldu í lok verkefnisins opið hús í skólanum þar sem foreldrum var boðið að koma og kynna sér þau fjölmörgu verkefni sem nemendur unnu. 

Mat stjórnenda, kennara og nemenda er að verkefnið hafi skilað umtalsverðum árangri, eins og hér má sjá í umsögnum nemenda í könnun sem lögð var fyrir þá í lokin:

Við sáum strax að þetta væri ekki bara upplifun fyrir þau heldur líka fyrir okkur sem hóp að vinna saman og setja okkur í spor annarra. 

Við áttuðum okkur á því að það eru ekki allir eins, og að margir þurfa að takast á við mikla erfiðleika í daglegu lífi. 

Við naglalökkuðum konurnar, hlustuðum á margskyns sögur þeirra og nutum þess að eiga með þeim notalega stund. Margir sögðu okkur frá lífi sínu og æsku, og það var ótrúlega gaman að heyra hversu ólíkar barnaæsku allir áttu. 

Í skýrslu um verkefnið segir m.a. 

Verkefnið virðist hafa tekist mjög vel. Nemendur voru almennt jákvæðir gagnvart því og mikill meirihluti vill sjá það endurtekið. Verkefnið styrkti samkennd, samfélagsvitund og samvinnu nemenda. Könnunin sýnir einnig mjög sterkan stuðning kennara við þróunarverkefnið. Ný útfærsla verkefnisins er talin hafa bætt skipulag, aukið gildi fyrir nemendur og styrkt samfélagslega þátttöku þeirra. Helstu umbótatækifæri snúa að upplýsingagjöf og mati verkefna. 

 


Yfirlit um tilnefningar 2026

Scroll to Top