Samkeppni um ritun greina um þróunarstarf í framhaldsskólum

Ákveðið hefur verið að efna til samkeppni um greinar um þróunarverkefni í framhaldsskólum til birtingar í Skólaþráðum, vefriti samtakanna (www.skolathraedir.is). Greinarnar mega vera allt að 5000 orð, auk myndefnis ef við á. Sóst er eftir greinum um áhugavert þróunarstarf, nýbreytni, aðferðir, nálganir, námsumhverfi, hugmyndir og hugmyndafræði eða rannsóknir. Veitt verða verðlaun kr. 75.000 kr., fyrir fimm bestu greinarnar að mati dómnefndar og þær birtar í Skólaþráðum. Greinunum á að skila í ritvinnsluskjali fyrir 31. desember 2022 til skolastofan(hja)skolastofan.is.