Endurnýjað samkomulag um Íslensku menntaverðlaunin undirritað

Að lokinni athöfn á Bessastöðum 5. nóvember sl. undirrituðu aðstandendur Íslensku menntaverðlaunanna ótímabundið samkomulag um verðlaunin til framtíðar. Samkomulagið miðar við að verðlaunin verði áfram með sama sniði. Auglýst verður eftir tillögum um tilnefningar að vori, tilnefningar kynntar á alþjóðlega kennaradeginum 5. október og verðlaunin afhent á Bessastöðum í nóvember.

Að verðlaununum standa Embætti forseta Íslands, mennta- og barnamálaráðuneyti, innviðaráðuneyti, Samtök iðnaðarins, Félag um menntarannsóknir, Grunnur – félag stjórnenda á skrifstofum fræðslumála í sveitarfélögum, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Kennarasamband Íslands, Listaháskóli Íslands, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, Reykjavíkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök áhugafólks um skólaþróun.

Nýja samkomulagið má sjá hér.

Sigurður Hannesson, Samtökum iðnaðarins, Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra, Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, undirrita nýtt samkomulag um Íslensku menntaverðlaunin á Bessastöðum 5. nóvember 2024.
Scroll to Top