Samræða um menntastefnu til ársins 2030

Félag um menntarannsóknir og Samtök áhugafólks um skólaþróun bjóða félagsmönnum og öðrum áhugasömum um menntamál á nestisfund þar sem rætt verður um aðra aðgerðaáætlun vegna Menntastefnu til ársins 2030:

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson og Hermína Gunnþórsdóttir: Önnur aðgerðaáætlun í menntamálum rýnd

Frummælendur hafa nýverið rýnt í aðgerðaáætlunina og birt greinar þar sem þau greina helstu áherslur og áskoranir. Fundurinn gefur tækifæri til að kafa dýpra í innihald og áhrif áætlunarinnar, spyrja spurninga og taka þátt í opnum umræðum um innleiðingu menntastefnunnar.

Hér má nálgast greinar Ingólfs og Hermínu:

Staður og stund:

Föstudaginn 10. október 🕛 Kl. 12:00–14:00

📍Saga – Menntavísindasvið Háskóla Íslands, stofa  S-281 (gengið inn Þjóðarbókhlöðumegin) og á ZOOM.

☕ Allir velkomnir – takið með ykkur nesti og stefnum að góðum umræðum!

Slóð á Zoom: https://eu01web.zoom.us/j/64019292671#success

 

Scroll to Top