Birtir þú eða þið kennsluáætlanir á opinni vefsíðu?
Undanfarin ár hefur færst í aukana að kennarar og kennarateymi birti kennsluáætlanir eða verkefnalýsingar á opnum vefsíðum. Með því móti hafa nemendur, foreldrar og aðrir áhugasamir greiðan aðgang að efninu. Að deila áætlunum og námsefni með þessum hætti er, að mati stjórnar Samtaka áhugafólks um skólaþróun, til fyrirmyndar. Í tilefni af 20 ára afmæli samtakanna hefur stjórnin ákveðið að bjóða nokkrum þessara kennara út að borða (gjafakort)!
Kennarar, sem hafa áhuga á að koma til greina, eru beðnir um að senda samtökunum ósk um það með tilkynningu á þetta netfang (skolathroun(hja)skolathroun.is) fyrir 1. nóvember 2025. Eins geta aðrir sent inn ábendingar. Tilkynningunni þarf að fylgja vefslóð að efninu sem um ræðir og gjarnan upplýsingar um hve lengi það hefur verið birt með þessum hætti.
Matsviðmið:
- Viðfangsefnin eru fjölbreytt og áhugaverð
- Verkefnin eru byggð á lykilhæfni, hæfniviðmiðum eða öðrum mikilvægum markmiðum eða grunnþáttum aðalnámskrár
- Viðmót er notendavænt og framsetning góð (málfar, uppsetning, hönnun).
Við það er miðað að hægt verði að bjóða allt að 20 kennurum út að borða!
Dómnefnd verður skipuð til að meta vefsíðurnar.