Sandra Ómarsdóttir

Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2026  

Sandra Ómarsdóttir, kennari í Seljaskóla í Reykjavík, fyrir framúrskarandi sviðslistakennslu

 

Sandra lauk meistaranámi í listkennslu frá LHÍ 2021 og hafði áður lokið sálfræðinámi til B.A. gráðu frá Háskóla Íslands. Sandra kennir sviðslistir við Seljaskóla ásamt því að setja upp söngleiki með nemendum. Hún kennir jafnframt í hlutastarfi kennslufræði sviðslista við Listaháskóla Íslands. Sandra hefur tekið að sér fjölmörg verkefni sem dansari, danskennari og danshöfundur.

Á hverju ári setur Sandra upp metnaðarfullar og vandaðar leiksýningar með nemendum í Seljaskóla sem hafa vakið mikla og verðskuldaða athygli. Foreldrar nefna þessar sýningar sérstaklega þegar rætt er um styrkleika skólans. Sýningarnar þykja einkennast af faglegum vinnubrögðum, ríkri listrænni sýn og vandaðri útfærslu þar sem hvert smáatriði er úthugsað. Um eina uppsetninguna segir í greinargerð sem fylgdi tillögu um tilnefningu Söndru 

Eitt skýrasta dæmið um sköpunarkraft hennar er leikritið Glymskrattinn, sem hún hefur sjálf samið. Þar fléttar hún saman sögu, tónlist og menningu á skapandi og lifandi hátt, með virkri þátttöku nemenda í mótun verksins. Verkefnið eflir bæði samvinnu og sjálfstraust nemenda, og árið 2026 tóku alls 86 nemendur þátt. 

Söndru er lýst sem jákvæðum samstarfsfélaga sem miðlar þekkingu sinni áfram, bæði innan skólans og til annarra kennara; Hún er hugmyndarík, skipulögð og ósérhlífin, og hefur haft afar jákvæð áhrif á starfsanda og skólasamfélagið í heild. 

Í greinargerðum með tillögum að tilnefningum sagði m.a. þetta 

Ástæða þess að Sandra á skilið að fá viðurkenningu sem framúrskarandi kennari er að hún er ungur kennari sem hefur sett svip sinn á gamalgróinn skóla svo um munar. Hún á stóran þátt í að þjappa saman árgöngum með því að vinna með þeim stór samvinnuverkefni sem allir eru stoltir af og hafa þar með gífurlega jákvæð áhrif á skólabrag Seljaskóla. Henni tekst að virkja alla nemendur hvernig sem námsleg og félagsleg staða þeirra er, óháð trúarbrögðum, húðlit eða móðurmáli þeirra. Með uppsetningum hennar á þessum frábæru sýningum þjappar hún líka saman foreldrahópnum og myndar jákvæð og skemmtileg tengsl á milli starfsmanna, nemenda og foreldra. Sýningarnar vekja athygli utan skólans og eru hvatning til annarra sviðslistakennara. 

Sandra er frumkvöðull og fyrirmynd í því hvernig listir geta verið burðarás í skólastarfi og raunverulegt afl til menntaumbóta … Með starfi sínu hefur Sandra ekki aðeins eflt listkennslu í skólanum heldur einnig styrkt tengsl nemenda, kennara og foreldra. Hún er sannkölluð fyrirmynd í sínu fagi og afar vel að þeirri viðurkenningu komin sem hér um ræðir. 


Yfirlit um tilnefningar 2026

Scroll to Top