Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar

Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2025
Skólar og aðrar menntastofnanir 

Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar
fyrir metnaðarfullt og árangursríkt tónlistarstarf sem unnið er af elju og fagmennsku í þágu barna 

Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar var stofnuð 1954 og var ein tveggja fyrstu skólahljómsveita í Reykjavík. Núverandi skólahljómsveitarstjóri er Ingi Garðar Erlendsson og hefur hann stjórnað hljómsveitinni frá 2019. Hljómsveitin er ætluð grunnskólabörnum í 4. til 10. bekk, en boðið er upp á kennslu á blásturshljóðfæri, rafbassa og slagverk. Alls stunda um 160 nemendur hljóðfæranám við skólann og við hann starfa 14 kennarar í misháum stöðugildum. Þrjár hljómsveitir eru starfandi í skólanum og er skipað í þær eftir aldri. A-sveit inniheldur 4. og 5. bekk, B-sveit 6. og 7. bekk og elsta sveitin, C-sveit, er 8. til 10. bekkur.  

Markmið skólahljómsveitarinnar er að búa til vettvang fyrir börn með áhuga á tónlist að vinna saman að tónlistarsköpun og tónlistarflutningi. Tónlistarval er bæði fjölbreytt og frumlegt og það á bara að vera gaman. Vinátta, virðing og traust er aðalsmerki hljómsveitarinnar. Hljómsveitarstarfið eflir börnin í framkomu og sigrast þau í sameiningu á allskyns áskorunum. Félagsþroski er stór þáttur í starfi skólans. Farið er í æfingabúðir, tónleikaferðir og Landsmót á hverju ári.  

Árangurinn sem hljómsveitin hefur náð þykir einstakur og samstarf við hana eftirsótt. Sem dæmi má nefna að á síðasta skólaári lék sveitin í uppsetningu Borgarleikhússins á leikverkinu Fía­sól gefst aldrei upp, í verðlaunadansverki Íslenska dansflokksins Hring­ir Orfeus­ar og ann­að slúð­ur, flutti frumsamið tónverk á opnunarhátíð Myrkra Músíkdaga í upphafi árs ásamt því að flytja alla fyrstu hljómplötu Benna Hemm Hemm ásamt söngvaranum og kór á stórtónleikum í Háskólabíó á vordögum. Hljómsveitin hefur þar að auki komið fram í sjónvarpsþætti Ríkissjónvarpsins Vikan með Gísla Marteini, ásamt framkomu á tónleikum í Laugardalshöll með hljómsveitinni Sigur Rós árið 2022.  

Auk þess leika allar hljómsveitir á hverju ári t.d. fyrir skóla, dvalarheimili aldraðra og við hin ýmsu tilefni, s.s. ráðstefnur, vorhátíðir, bókahátíðir og önnur tilefni. Sumardagurinn fyrsti er tekinn hátíðlega hjá SVoM og hefur myndast sú hefð að foreldrafélag SVoM hefur staðið fyrir dagskrá fyrir íbúa hverfisins sem hefst á skrúðgöngu og endar á maraþon-tónleikum í Vesturbæjarskóla. Gríðarlega öflugt foreldrafélag er starfandi við skólann.  

Að lokum má nefna að grunnskólarnir hafa notið góðs af nemendum hljómsveitarinnar sem hafa verið máttarstólpar ýmissa verkefna t.d. í söngleikjum og atriðum skólanna fyrir Skrekk og fleiri viðburði. Síðustu ár hefur hátt hlutfall nemenda við skólahljómsveitina haldið áfram tónlistarnámi og brottfall er afar lítið. Síðastliðið vor útskrifuðust 23 nemendur úr SVoM eftir 7 ára nám og stundar meirihluti þeirra nemanda nú áframhaldandi nám við MÍT. 

Úr greinargerð sem fylgdi tillögu að tilnefningu hljómsveitarinnar:  

Kennarar SVoM sjá engar hindranir, eingöngu lausnir og möguleika. Hvatning, gleði og hrós eru gegnumgangandi í öllu þeirra starfi og þau skapa umhverfi þar sem allir njóta sín. Samkennd, samvinna og virðing er rauði þráðurinn í öllu hjá þeim. Þannig tekst þeim að byggja upp metnað og framfarir hjá börnunum, og hljómsveitirnar vaxa og dafna eins og börnin. Elstu börnin fá tækifæri á að hefja sín fyrstu skref sem atvinnutónlistarmenn þar sem þau eru að fá fjölmörg tækifæri á að koma fram og spila á hinum ýmsum viðburðum og fá jafnvel líka greitt fyrir sína vinnu og tónleika. 


Aftur á yfirlitssíðu 

Scroll to Top