Skráning er hafin á ráðstefnu Samtaka áhugafólks um skólaþróun (SÁUS) sem verður haldin föstudaginn 14. ágúst 2026 í Hörðvallaskóla í Kópavogi. Yfirskrift ráðstefnunnar er Fagmennska og gefandi skólastarf. Með þeirri yfirskrift stefnir stjórn félagsins að ráðstefnan færi kennurum ýmis sjónarmið, verkefni og kennsluaðferðir í skólastarfi. Jafnframt séu þau gefandi fyrir bæði nemendur og kennara og færi kennurum möguleika til að sinna störfum sínum af aukinni fagmennsku sem veiti frekari kennslufræðilegt vald og árangur í skólastarfinu. Auglýst verður eftir málstofuerindum fljótlega en þegar hafa verið fengnir tveir aðalfyrirlesarar. Það er annars vegar Berlind Rós Magnúsdóttir, prófessor og hins vegar Lilja M. Jónsdóttir fv. lektor og Ingvar Sigurgeirsson prófessor emeritus, öll við menntavísindasvið HÍ.
Ráðstefnugjald er kr. 7.900.- fyrir félagsfólk í Samtökum áhugafólks um skólaþróun og kr. 10.500.- fyrir utanfélagsfólk. Gjaldið er greitt með því að leggja greiðslu inn á þennan reikning: 0323–26–002277, kt. 451205-0720 og senda tilkynningu um greiðslu á þetta netfang: skolathroun(hja)skolathroun.is. Innifalið í ráðstefnugjaldi er aðgangur að öllum erindum og veitingar (morgunhressing, hádegisverður og síðdegishressing).
Hægt að gerast félagsmaður núna í gegnum skráningarformið hér neðar og greiða lægra ráðstefnugjaldið fyrir ráðstefnuna í ágúst.
Skráning á ráðstefnuna fer fram í gegnum þessa vefslóð: https://forms.gle/NpNuYkwSFjmHtz598
Stjórn Samtaka áhugafólks um skólaþróun (SÁUS).