Söngvavor: Samstarfsverkefni leikskóla og tónlistarskóla

Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2026

Söngvavor er samstarfsverkefni leikskóla og tónlistarskóla sem á rætur að rekja til farsællar samvinnu Tónskóla Sigursveins og leikskóla í Reykjavík frá árinu 2010. Verkefnið byggir á þeirri grundvallarsýn að öll börn eigi rétt á virkri þátttöku í menningarlífi og listum. Meginmarkmið þess er að efla sönggleði, sjálfstraust og samfélagslega virkni elstu barna leikskólans með virkri þátttöku í miðlun íslensks tónlistararfs. 

Á hverju ári er valið íslenskt tónskáld og verk þess útsett sérstaklega með raddsvið leikskólabarna og getu ungra hljóðfæraleikara í huga. Nálgunin tryggir öllum börnum jafnan aðgang. Lög og textar bjóða upp á mismunandi erfiðleikastig til að mæta fjölbreyttum þörfum nemenda, meðal annars barna með annað móðurmál en íslensku. Leikskólakennarar miðla upplýsingum um framgang verkefnisins á sameiginlegum rafrænum vettvangi. Þeir hafa verið sérlega hugmyndaríkir m.a. í að vinna með fróðleik um viðkomandi tónskáld og texta laga hvers árs. Í daglegu leikskólastarfi er tónlistin samþætt öðrum námsþáttum, svo sem máli og læsi, myndsköpun og útikennslu, sem styrkir málskilning og orðaforða barna.  

Verkefnið myndar mikilvæga brú milli leikskóla og tónlistarskóla. Leikskólabörn heimsækja tónlistarskólana, kynnast hljóðfærum og æfa með nemendum á aldrinum 10–16 ára sem leika undir  á hljóðfæri. Þetta samstarf veitir eldri tónlistarnemendum dýrmæta reynslu af samspili og miðlun þekkingar til yngri kynslóða, á meðan leikskólabörnin eignast jákvæðar fyrirmyndir innan skólakerfisins. 

Verkefninu lýkur með hátíðlegum tónleikum í menningarhúsum hvers sveitarfélags. Reynsla af verkefninu og rannsóknir sýna að upplifunin af því að stíga á svið og flytja tónlist fyrir framan fjölskyldur og nærsamfélag hefur mótandi áhrif á sjálfsmynd og félagsfærni barna. 

Frá árinu 2024 hefur Söngvavor breiðst hratt um landið allt. Vorið 2026 tóku þátt 15 tónlistarskólar, um 300 hljóðfæranemendur og 2.746 leikskólabörn í 140 leikskólum víðs vegar um landið. Á komandi vori er von á enn fleiri þátttakendum víða um land. Áætlað er að verkefnið snerti um 30.000 einstaklinga, þar á meðal aðstandendur og fjögurra ára börn sem sækja viðburðina til undirbúnings. 

Verkefnastjóri Söngvavors frá upphafi er Elfa Lilja Gísladóttir. Verkefnið nýtur stuðnings Mennta- og barnamálaráðuneytisins til næstu þriggja ára og unnið er að frekari innleiðingu í samstarfi við fleiri sveitarfélög. Framtíðarmarkmiðið er skýrt: Að tryggja öllum fimm ára börnum á Íslandi jöfn tækifæri til listrænnar tjáningar og virkrar þátttöku í Söngvavori. 


Yfirlit um tilnefningar 2026

Scroll to Top