Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti

Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2026

Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti fyrir að þróa einstaklingsmiðað nám með það að markmiði að þroska með nemendum hæfni og getu sem gerir þeim fært að takast á við fjölbreytt viðfangsefni daglegs lífs 

Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti er einkum ætluð nemendum sem hafa verið í námsverum eða sérskólum í grunnskóla eða fengið verulegan stuðning í almennum bekk vegna fötlunar eða sérstakra námsörðugleika. 

Á starfsbraut er markvisst unnið er að því að auka sjálfstæði og sjálfsábyrgð nemenda með því að gera þá meðvitaðri um eigin persónu, félagsleg samskipti og umhverfið. Nemendum eru veitt fjölbreytt tækifæri til að öðlast nýja reynslu og þekkingu sem getur nýst þeim að námi loknu. 

Á brautinni starfar fjölbreyttur hópur fagfólks með víðtæka reynslu og þekkingu, þar á meðal sérkennarar, þroskaþjálfar og stuðningsfulltrúar, sem vinna náið saman að því að mæta ólíkum þörfum nemenda.  

Kennsluhættir á starfsbraut eru fjölbreyttir og sniðnir að þörfum einstaklinga og getu. Unnið er út frá einstaklingsmiðuðum námsáætlunum. Metnaður er lagður í að nýta nútímatækni, bæði í kennslu og við gerð námsgagna. Við skipulag námsins er tekið mið af óskum, áhugasviði og möguleikum nemanda, óskum og áliti foreldra ásamt þeim möguleikum sem skólinn og umhverfið býður upp á hverju sinni. 

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti býr yfir fjölmörgum styrkleikum og á starfsbraut eru þeir vel nýttir í þágu nemenda. Við skólann er í boði öflugt verknám t.a.m. í húsasmíði, rafvirkjun, snyrtifræði, listnámi og upplýsingatækni sem nemendur og kennarar á starfsbraut hafa aðgang að. Við skólann er einnig til húsa opin stafræn smiðja (Fablab Reykjavík) þar sem markmiðið er að efla nýsköpun, styðja við vöruþróun fyrirtækja og sköpunarkraft borgarbúa. Í smiðjunni eru kenndir valáfangar þar sem nemendur teikna í bæði tví- og þrívídd og raungera eigin hugmyndir með laserskurðarvélum, þrívíddarprenturum og öðrum skapandi verkfærum. Í nærumhverfi skólans er svo Elliðaárdalurinn sem er einstakt námsumhverfi og mikið nýtt. Nýsköpun í námsefnisgerð og kennsluaðferðum er forsenda einstaklingsmiðaðs náms. Vettvangs- og fræðsluferðir, útinám, heimsóknir, ratleikir, verkleg viðfangsefni, sköpun, hreyfing, hönnun og lausnaleit eru dæmi um kennsluaðferðir sem mikið eru notaðar á brautinni. Þetta má sjá vel á samfélagsmiðlum (sjá t.d. hér). 

Kennsluaðferðir og kennsluefni á starfsbraut eru sniðnar að hverjum nemanda og áhersla lögð á að hlusta á óskir þeirra. Nýsköpun í námsefnisgerð og kennsluaðferðum er forsenda einstaklingsmiðaðs náms. Vettvangs- og fræðsluferðir, útinám, heimsóknir, ratleikir, verkleg viðfangsefni, sköpun, hreyfing, hönnun og lausnaleit eru dæmi um kennsluaðferðir sem mikið eru notaðar á brautinni. Þetta má sjá vel á samfélagsmiðlum (sjá t.d. hér). 

Í boði eru auk kjarnagreina, nám í list- og verkgreinum, íþróttum og heilsueflingu, upplýsingatækni, lífsleikni og starfsnám. Nemendur eru hvattir til að nýta sér nemendaaðstöðu skólans og unnið er að því að þeir fái tækifæri til þess að tengjast nemendum af öðrum brautum með þátttöku í almennum kennslustundum sé þess kostur, auk félagsstarfs. Á 3. og 4. námsári er lögð áhersla á starfstengt nám og kynningu á vinnustöðum.


Yfirlit um tilnefningar 2026

 

Scroll to Top