
Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun og Félags um starfendarannsóknir í Menntaskólanum við Sund, miðvikudaginn 6. nóvember 2019, kl. 15.00
Fyrirlestrar, fræðslufundir, stutt og löng námskeið, einingabær námskeið, netnámskeið, fagfundir, starfsþróunarfundir, námsefnisgerð, skrif, „súpufundir“, skólaheimsóknir (innan lands og utan), vinnubúðir, vinnuferðir, leshringir, rannsóknarkennslustundir, menntabúðir, opnar stofur, jafningjamat, jafningjafræðsla, starfendarannsóknir, þátttökurannsóknir, kennararannsóknir, þróunarverkefni, ígrundun, sjálfsnám |
Á ráðstefnunni voru ræddar þær leiðir sem kennarar og annað fagfólk í skólum getur farið til starfsþróunar – einkum það sem vel hefur gefist!
Ráðstefnustjórar: Hjördís Þorgeirsdóttir og Sigurrós Erlingsdóttir kennarar í MS
Heiðursgestur ráðstefnunnar: Hafþór Guðjónsson
15.00 Ráðstefnan sett
15.10 Hafþór Guðjónsson: Að rýna í eigin rann. Mikilvægi sjálfsrýni í starfendarannsóknum
15.45 Kaffi
16.00–17.00 Örerindi
- Hildur Jóhannesdóttir skólastjóri í Dalskóla: Allir í bátana – starfendarannsóknir í Dalskóla
- Guðbjörg Pálsdóttir dósent við Háskóla Íslands: Rannsóknarkennslustund – leið til að styrkja námssamfélag kennara
- Guðrún Sólveig leikskólastjóri leikskólans Rauðhóls: Leyndarmál Rauðhólsgleðinnar
- Sjá hér: https://raudholsgledin.com/
- Þóra Víkingsdóttir líffræðikennari við MS: Hvað hefur eflt mig mest í starfi …?
17.00-17.30 Samræða
Fyrirlesarar bjóða upp á samræður við ráðstefnugesti. Kynningar á starfsþróunarverkefnum, starfsþróunarmöguleikum og starfendarannsóknum.
17.30-18.30 Hópumræður (með heimskaffisniði):
- Hver er staðan í starfsþróunarmálum kennara?
- Hvaða ljón eru í veginum? Hvað hindrar?
- Hvaða leiðir eru vænlegastar til að efla starfsþróun kennara?
- Hvar liggja helstu sóknarfæri?
Niðurstöðurnar er að finna hér!
18.30-19.30 Léttur kvöldverður og veitingar
Félagsmönnum í Samtökum áhugafólks um skólaþróun er boðið á ráðstefnuna – aðrir greiða kr. 1500.- Gjaldið má greiða með því að leggja greiðslu inn á þennan reikning: 0323–26–002277, kt. 451205-0720 og senda skýringu á millifærslu á þetta netfang: skolastofan@skolastofan.is
Vinsamlega setjið þessa skýringu við greiðsluna: Starfsþróun
Skráning er hér |