Stilla – hæglátt leikskólastarf

Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2026

Þróunarverkefnið Stilla stóð yfir í þrjú ár með þátttöku leikskólanna Aðalþings í Kópavogi, Iðavallar á Akureyri, Rauðhóls í Reykjavík og Uglukletts í Borgarnesi sem unnu saman með fræðafólki frá Háskólanum á Akureyri, Háskóla Íslands og University of South-Eastern Norway. 

Markmið verkefnisins var að skapa rými fyrir hæglátt leikskólastarf, þar sem börn fá nægan tíma og svigrúm til að sökkva sér í leik, kanna hugmyndir sínar og ljúka þeim verkefnum sem skipta þau máli. Nafnið Stilla vísar bæði til kyrrðar og þess að finna sameiginlegan takt, líkt og þegar hljóðfæri eru stillt saman. Hæglætið felst ekki í því að allt gangi hægt fyrir sig, heldur að starfsfólk stilli sig inn á börnin, samstarfsfélaga, umhverfið og aðstæður hverju sinni. Í kjarna þess liggja nærvera, hlustun, samfella og næmni fyrir fjölbreyttum þörfum og takti hvers barns (Anna Magnea Hreinsdóttir og Kristín Dýrfjörð, 2026). 

Leikskólarnir lögðu allir mikla áherslu á leik, lýðræði og þátttöku barna, en hver og einn fann sína leið til að nálgast viðfangsefnið. Þeir skoðuðu meðal annars hljóðumhverfi, endurskoðuðu dagskipulag og gáfu börnum meiri samfellu og tíma til leiks og rannsókna. Sem dæmi fengu gönguferðir stundum að þróast í takt við áhuga barnanna, og gátu lengst og breyst eftir forsendum og áhuga barnahópsins. 

Verkefnið byggði á hugmyndum um starfstengda rannsókn. Skráning, samræður og sameiginleg ígrundun voru mikilvægur hluti af þróunarferlinu og leikskólarnir deildu reynslu sinni og lærðu hver af öðrum. 

Hæglætið er ekki aðferð sem skólarnir tóku upp, heldur sjónarhorn sem hjálpaði þeim að skoða og endurmeta eigið starf. Smám saman þróaðist sameiginlegt tungumál um tíma, takt, nærveru og faglegt svigrúm. Starfsfólkið varð öruggara við að endurskoða rútínur, verja tíma barna og útskýra faglegar ákvarðanir sínar. Leikskólarnir urðu einnig virkir þátttakendur í að miðla hugmyndum og reynslu út í leikskólasamfélagið. 

Úr verkefninu hafa sprottið fræðigreinar, ráðstefna og áframhaldandi samstarf bæði innanlands og á Norðurlöndum. Rannsóknasjóður Háskóla Íslands og Mennta- og barnamálaráðuneytið styrktu verkefnið. 

Heimildir um verkefnið 


Yfirlit um tilnefningar 2026

Scroll to Top