Framúrskarandi kennari
Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2024
Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir grunnskólakennari við Grunnskóla Borgarfjarðar fyrir þróunarstarf við að innleiða námskrá í kynheilbrigðisfræðslu með áherslu á sjálfs- og líkamsímynd.
Þora Geirlaug útskrifaðist með B.Sc. gráðu í líffræði frá Háskóla Íslands 2009 og lauk kennsluréttindanámi frá Háskólanum á Akureyri ári síðar. Árið 2013 lauk hún M.Ed í kennslu náttúrufræðigreina frá Háskóla Íslands. Hún er nú náttúrufræðikennari við Grunnskóla Borgarfjarðar þar sem hún hefur starfað í um tíu ár.
Fljótlega eftir að Þóra Geirlaug hóf kennslu sá hún að æskilegt væri að bæta kynfræðslu í skólanum og hófst handa við að mennta sig frekar á því sviði með diplómanámi í kynfræði við Háskóla Íslands. Markmið Þóru Geirlaugar var að finna leið til þess að kynfræðslan yrði markvissari, heildstæðari og árangursríkari en áður. Skólaárið 2021-2022 stýrði hún þróunarverkefninu Við – kynheilbrigðisfræðsla með áherslu á sjálfsmynd og líkamsímynd. Verkefnið, sem hlaut styrk úr Sprotasjóði, snerist um samfellda kynfræðslu frá leikskólastigi upp í 10. bekk og vakti verkefnið mikla athygli. Skólaárið 2024- 2025 er hún verkefnastjóri þróunarverkefnisins Framtíðarfólk í Grunnskóla Borgarfjarðar þar sem forvarnarverkefni og skólaþróunarverkefni tengd heilbrigði, sjálfsmynd og samvinnu eru sameinuð.
Þóra Geirlaug hefur lagt sig fram um að skapa menningu og skólasamfélag þar sem kynfræðsla er jafn sjálfsagður þáttur í skólastarfinu og hver önnur kennsla. Allan kennsluferilinn hefur hún verið umsjónarkennari, lengst af á unglingastigi, þar sem kynheilbrigði og samskipti er málefni sem brennur mjög á nemendum. Hún hefur jafnframt verið ötul við að fræða og ræða við kennara í öðrum skólum um þessi mál. Þóra Geirlaug hefur einnig samið kennslugögn í eðlisfræði og líffræði og fyrir samkennara sína sem einnig hafa nýst kennurum í öðrum skólum.
Úr umsögn sem fylgdi tillögu um tilnefningu sagði meðal annars þetta:
Nemendur Grunnskóla Borgarfjarðar hafa tjáð sig um ánægju sína með þá kynfræðslu sem þeir hafa fengið í skólanum og þeirra skoðun er að allir nemendur í grunnskólum eigi að fá viðlíka kennslu. Vinna Þóru Geirlaugar síðustu ár er til fyrirmyndar og stuðlar að auknum gæðum í skólastarfi auk þess að hún smitar frá sér metnaði sem er hvetjandi fyrir aðra kennara.
Þóra Geirlaug heldur úti heimasíðu með námsefni og verkefnum í kynfræðslu:
Grein eftir Þóru Geirlaugu í Skólaþráðum:
Grein eftir Þóru Geirlaugu á visir.is:
Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir grunnskólakennari við Grunnskóla Borgarfjarðar fyrir þróunarstarf við að innleiða námskrá í kynheilbrigðisfræðslu með áherslu á sjálfs- og líkamsímynd.