Þrjú þróunarverkefni eru tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna í ár, hvert öðru áhugaverðara.
Samkennd og sjálfræði – verkefni í Verzlunarskóla Íslands hefur verið í mótun undanfarin fjögur ár. Nemendur á fyrsta ári vinna í hópum að verkefnum sem beinast að setja sig í spor annarra og láta gott af sér leiða í samfélaginu. Nemendur leggja af mörkum á leikskólum, elliheimilum, hjúkrunarheimilum eða vinna með góðgerðasamtökum, svo fátt eitt sé nefnt. Sjá nánar um þetta verkefni hér. Einnig má benda á grein um verkefnið í Skólaþráðum: „Við fórum út með bros á vör og hlýju í hjarta“ – Samkennd og sjálfræði í Verzlunarskóla Íslands.
Söngvavor er samstarfsverkefni tónlistarskóla og leikskóla. Leikskólabörnin læra sönglög eftir íslensk tónskáld, heimsækja tónlistarskóla og æfa með hljómsveitum þeirra. Verkefninu lýkur með mikilli tónlistarhátíð þar sem börnin koma fram fyrir áheyrendur. Sjá nánar um verkefnið hér. Einnig má benda á heimildamynd um verkefnið, sjá hér.
Stilla – hæglátt leikskólastarf er samvinnuverkefni rannsakenda og starfsfólks í fjórum leikskólum, Aðalþingi í Kópavogi, Iðavelli á Akureyri, Rauðhóli í Reykjavík og Uglukletti í Borgarnesi. Markmið verkefnisins er að gefa börnunum fá nægan tíma og svigrúm til að sökkva sér í leik, kanna hugmyndir sínar og ljúka þeim verkefnum sem skipta þau máli. Sjá nánar hér. Um verkefnið má einnig fræðast með því að lesa greinar um það í Skólaþráðum, sjá hér.
(IS – 24.10. 2026)