Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2021


Markmið Íslensku menntaverðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Verðlaunin eru veitt í þremur aðalflokkum:

  1. Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur. Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki, til skóla eða annarrar menntastofnunar, sem stuðlað hefur að menntaumbótum er þykja skara fram úr.
  2. Framúrskarandi kennari. Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki til kennara sem stuðlað hefur að menntaumbótum sem þykja skara fram úr.
  3. Framúrskarandi þróunarverkefni. Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni eru veitt verkefnum sem standast ítrustu gæðakröfur um markmið, leiðir, inntak, mat og kynningu, hafa samfélagslega skírskotun og nýtast til að efla menntun í landinu. Til greina koma verkefni sem tengjast skóla- eða frístundastarfi, listnámi eða öðru starfi með börnum og ungmennum og hafa ótvírætt mennta- og uppeldisgildi.

Að auki er veitt hvatning til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr.

Tilnefningar skal senda með því að nýta þessi skráningarform:

Einnig má senda tilnefningarnar í pósti:

Samtök áhugafólks um skólaþróun
Pósthólf 30
270 Mosfellsbær
(Merkið umslagið: Íslensku menntaverðlaunin)


Að verðlaununum standa: Embætti forseta Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneyti, samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðuneyti, Félag um menntarannsóknir, Grunnur – félag fræðslustjóra og stjórnenda skólaskrifstofa, Kennaradeild Háskólans á Akureyri, Kennarasamband Íslands, Listaháskóli Íslands (listkennsludeild og tónlistardeild), Menntamálastofnun, Mennta­vísindasvið Háskóla Íslands, Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök áhugafólks um skólaþróun og Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar.

Verðlaunin njóta stofnstyrkja sem mennta- og menningarmálaráðuneytið og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti hafa veitt.

Sjá nánari upplýsingar um verðlaunin hér.

 

Frá afhendingu verðlaunanna í nóvember 2020. Smellið á myndina til að sjá kvikmynd um afhendinguna.