Nú hefur verið greint frá því hver eru tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna 2023!
Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki, til skóla eða annarrar menntastofnunar, sem stuðlað hefur að menntaumbótum er þykja skara fram úr. Þessar menntastofnanir eru tilnefndir:
- Brekkubæjarskóli á Akranesi
- Bungubrekka, frístundamiðstöð Hveragerðisbæjar
- Framhaldskólinn í Mosfellsbæ
- Grunnskólinn í Vestmannaeyjum
- Leikskólinn Ugluklettur í Borgarnesi
B. Framúrskarandi kennari.
Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki til kennara sem stuðlað hefur að menntaumbótum sem þykja skara fram úr. Tilnefndir eru þessir kennarar:
- Brynja Stefánsdóttir, kennari í Stapaskóla í Reykjanesbæ
- Fiona Elizabeth Oliver, kennari í Víkurskóla í Reykjavík
- Harpa Rut Svansdóttir, leikskólakennari í leikskólanum Smáralundi, Hafnarfirði
- Hrund Teitsdóttir, kennari við Hríseyjarskóla
- Ólafur Schram, tónmenntakennari í Sjálandsskóla í Garðabæ
C. Framúrskarandi þróunarverkefni
Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni eru veitt verkefnum sem standast ítrustu gæðakröfur um markmið, leiðir, inntak, mat og kynningu, hafa samfélagslega skírskotun og nýtast til að efla menntun í landinu. Eftirfarandi verkefni eru tilnefnd:
- Hinsegin félagsmiðstöð S78 og Tjarnarinnar
- Samvinna og sjálfræði – Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Þróunarverkefni í Verzlunarskóla Íslands
- Starfendarannsóknir í Menntaskólanum við Sund
- Viltu tala íslensku við mig? Samstarfsverkefni Íslenskuþorpsins og grunnskólanna í Grafarvogi og á Kjalarnesi
- Samstarf velferðarþjónustunnar í Árborg og félagsmiðstöðvarinnar Zelsíuz
D. Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun
Ein verðlaun veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla- eða menntastofnun fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar. Tilnefningar fá:
- Haukur Eiríksson, kennari við Verkmenntaskólann á Akureyri
- Málarabraut Byggingatækniskóla Tækniskólans
- Marín Björk Jónasdóttir, kennari og sviðstjóri í Borgarholtsskóla